föstudagur, desember 19, 2003

Eitt próf búið og eitt eftir! Bless afbrotafræðiglósur! Asanlegt próf, asnalegar spurningar og ég fæ örugglega asnalega einkunn. Hélt upp á að vera búin með afbrotafræðina með því að kíkja smá í búð með Ólöfu og svo í kombat með Fram-strákum sem kunna ekki að gera framspark ;-) En þeir voru mjög góðir reyndar, ágætis tilbreyting að fá smá karlhormónalykt í salinn. Kíkti í örstutta sjúkraheimsókn til Jóa en fékk ekki að leika lækni svo ég fór bara heim að læra. Var svo bara væskill og fór snemma að sofa.
Núna á leið til konu sem er með mér í þroskanum, við ætlum að kíkja aðeins á efnið saman. Reyndar lítið gagn í mér þar sem ég er varla búin að kíkja á efnið... en vonandi græði ég eitthvað hehe. Hlakka ekkert smá til á morgun að klára þessa önn og fara svo á tónleíka til styrktar krabbameinssjúkum börnum í Smáralind. Vinna á sunnudag og svo hef ég mánudag og þriðjudag til að kaupa gjafir, búa til óskalistann minn, kaupa skrifa og senda jólakort og taka til. Eg verð svo þessi dauða fyrir framan tréð á aðfangadag!