Þá er ég orðin húsum hæf og til í umræðuna á ný... Búin að sjá LOTR3! Loksins. Við Jói vorum ekki með neitt hálkák frekar en venjulega og gerðum okkur heilan dag úr ferðinni, horfðum fyrst á númer 2, svo fór ég í bodycombatmasterklass, fengum okkur að borða og svo á númer 3 í bíó. Mjög gott að því leyti að við vissum alveg hver staðan var í upphafi myndarinnar en slæmt að því leyti að við lok myndarinnar (notabene kl.2) var ég komin með algjört ógeð á bardagasenum og alveg hætt að geta fylgst með hver var að berja hvern.
Masterklassið var gott, helmingur tímans var bodystep og hinn kombat, bæði prógrömmin lofa góðu og ofurgellurnar sem kenndu voru alveg að standa sig í stuðinu. Ég var 10cm frá því að kýla Pál Óskar í nefið... bara fyndið. Fyrir dansara og plötusnúð er hann furðu taktlaus. Í dag eru harðsperrur í herðum og handleggjum allsráðandi en það er ekkert nema jákvætt um það að segja, ágætis tilbreyting frá því að vera bara með harðsperrur í kjálkanum af stanslausu áti.
ps. Ég ætlaði að segja frá tekíla-djamminu á laugardaginn en því er lýst nokkuð greinilega hér svo ég nenni því ekki.

<< Home