Frábært kvöld í gær! Fín stemmning og geggjaður matur mmm... Fordrykkur, snakk, nammi, mikill matur og mikið vín, frábær félagsskapur og stuðstemmning... Hvað getur klikkað? Borðuðum mikið og kjöftuðum meira, horfðum á ruglað Idol og vorum missáttar við úrslitin, ég vil lukkutröllið út...mér finnst hún alls ekki vera að standa sig! Fyrir utan nú það að hún var með hárgreiðslu dauðans í gær (sem var reyndar örugglega verri svona í ruglaðri dagskrá...en getur bara ekki hafa verið góð). Eftir 45 mínútna rökræður og vangaveltur um hvort við ættum að fara í bæinn eður ei var stemmningin eiginlega liðin undir lok og við héldum hver í sitt ból. Klukkan var reyndar orðin tæplega 4 þegar ég kom heim svo það var engin skömm að því.
Í dag er letidagur, ég er enn á náttfötunum og finnst það bara í góðu lagi, enda er ég ekki að fara gera neitt sérstakt. Nema... Gefa Halldóru Rut snemmbúnu afmælisgjöfina sem hún pantaði í gærkvöldi; taka út linkinn á gömlu síðuna hennar. Gjörsvovel Dóra mín og til hamingju með afmælið í febrúar ;-)

<< Home