mánudagur, janúar 19, 2004

Idolstjarnan loksins fundin! Ég er alveg sátt við úrslitin, hann var langflottastur! Svo flottur að ég eyddi 99 krónum í að kjósa hann og það er nú ekki peningur sem ég eyði í hvaða gaur sem er, ó nei. Við Ólöf vorum duglegar og fórum í Combat í föstudaginn, svo var brunað að sækja pizzu og kók (bara svona til að vera vissar um að ná því á okkur aftur sem við gætum hafa brennt í combatinu). Vorum heldur seint á ferð og gestirnir voru farnir að bíða fyrir utan hjá Ólöfu hahaha. Dansihópurinn hennar mætti og það var ágætis stemmning, þrátt fyrir að sumir hafi haft meiri áhuga á að tala en hlusta á Idolið... Svo þegar Kalli var orðinn hetja ársins áttaði ég mig á því að það var að verða ófært á götum Reykjavíkur svo ég lufsaðist heim á 20 km hraða í gegnum skaflana. Ekki það skemmtilegasta sem ég geri en ég held ég hafi staðið mig ágætlega bara.