Fyrir alla þá sem hafa velt fyrir sér af hverju krullur sem maður fær sér í hárið kallast permanent kemur hér útskýring:
Þegar maður fær sér permanent er settur einhver vökvi í hárið sem fær það til að laga sig að rúllum og haldast þannig þar til það vex úr, eins og strípur. Eða það er manni sagt! Staðreyndin er hins vegar sú að ef maður fær sér permanent segjum til dæmis í febrúar árið 2000 er hárið enn krullað í janúar 2004! Og þá er ég ekki að tala um sæta náttúrulega liði í hárinu Ó nei! Ég er að tala um full-on alvöru permanent gervilegar krullur. Nú gætuð þið sagt: Já en heyrðu nú mig! Krullurnar eru nú væntanlega búnar að vaxa úr á tæpum 4 árum góða, nú ertu eitthvað að rugla í okkur! En svar mitt við því er það sama og hárgreiðslukonan mín segir: Permanentið er löngu, löngu vaxið úr... ég skil ekkert í þessu... Þetta er mjög athyglisvert.
Athyglisvert indeed. Ég get nú til allrar hamingju greitt úr hárinu og haft það slétt en ef ég geri það ekki er ég alveg lambakrulluhaus. Tekið skal fram að þar til í febrúar 2000 var ég með rennislétt hár. Nafngiftin er sem sagt dregin af því að þeir sem fá sér permanent eru permanently búnir að rugla á sér hársysteminu.

<< Home