mánudagur, febrúar 23, 2004

Mamma kom heim frá Köben á laugardaginn og gaf mér ekki einn, heldur tvo fagurgræna boli! Mikið var ég hamingjusöm. Og þeir komu sér vel í gær þegar ég söng á nemendatónleikum í Ými... ég er viss um að bolurinn hafði mikið með velgengni mína að gera.
Í gærkvöldi fékk ég svo langþráða afmælisgjöf: Leikhúsferðina sem Ólöf gaf mér í 23 ára afmælisgjöf (ég varð einmitt 23 ára 1.apríl 2003). Með gjöfinni sannaðist að góðir hlutir eru þess virði að bíða eftir því við skemmtum okkur konunglega á Chicago þó svo að sýningin hafi verið heldur löng í annan endann. Mér finnst ósanngjarnt að fólk geti dansað eins og pro-dansarar meðan það syngur án þess að blása úr nös. Ég á nógu andskoti erfitt með að syngja fallega á meðan ég stend kyrr!