fimmtudagur, febrúar 26, 2004

Ég fékk forláta gull- og demantshring í jólagjöf frá mínum heittelskaða liðveisludreng. Hann var allt of stór á mig svo ég skellti mér með hann í minnkun. Ég fór með hann í Kringluna og var sagt að sækja hann eftir 10 daga! Greinilega mikið að gera á þeim stað en allt í lagi. Þegar ég sótti hann var ég rukkuð um 3200 krónur!!! 3200 krónur fyrir að klippa úr hringnum smá bút. Og nota bene þeir hirtu gullbútinn af því að ef þú hefðir vilja eiga bútinn hefðirðu þurft að segja okkur það fyrirfram. Einmitt það sem ég hefði gert hefði ég vitað hvað þetta myndi kosta... Ég er nú ekki sparsamasta manneskjan og alveg til í að borga fyrir að vera til en þetta fannst mér nú heldur rúmt tímakaup.