þriðjudagur, nóvember 18, 2008

Aðeins of þreytt en löglegt er fyrir þriðjudag en verð að blogga smá... Aðallega til að sanna atferlisfræðilega kenningar um að nú, þegar dyggir lesendur munu fá óvæntan þriðjudagspóst -en ekki bara sunnudagspóst- muni þeir koma hingað mun oftar til að athuga hvort ég hafi nokkuð aftur bloggað svona óvænt! Svona eru nú styrkingarkerfin skemmtileg. Og það eru kommentakerfin líka. Hm. Hm.

Ég var nú næstum búin að missa mitt vel pússaða kúl í strætó á leiðinni heim úr vinnunni í dag. 6 manneskur, já sex manneskjur, tóku 2 sæti hver! Hvað er að frétta? Og við vorum 5 sem stóðum á meðan. Finnst ykkur þetta hægt?
Ég vil benda á fjórar gildar ástæður fyrir svona hegðun: Ef manneskjan sem stendur er Jón Róni í ham að úthúða fólki hægri vinstri þá skil ég að fólk sé ekkert æst í að bjóða sætið sér við hlið. En ekkert okkar sem stóð í sexunni í dag var áberandi ölvað/líklegt til vandræða/illa lyktandi osv. ÓGILT Í ÞETTA SINN. Önnur lögboðna afsökunin er að vera unglingur. Unglingar eru nefnilega erfðafræðilega hannaðir til að vera sífellt að testa mörk og láta fyrir sér finna í samfélaginu (vera háværir, sparka í sætið fyrir framan osv). 2 af umræddum lausum sætum voru við hlið unglinga og þeir mega svosem alveg njóta þeirra greyin, pant ekki þurfa að ganga í gegnum gelgjuna aftur! ÓGILT FYRIR 4 SÆTI. Þriðja afsökunin er að vera svo feitur/stórbeinóttur/með staf eða önnur hjálpartæki, að maður kemst barasta ekki fyrir í einu sæti. Ég hef ákveðna samúð með því og einu konunni sem svo var statt fyrir í vagni dagsins. ÓGILT FYRIR 3 SÆTI. Í síðasta lagi má taka 2 sæti í strætó ef maður er ekki meðvitaður um strætósiðareglur af einhverjum orsökum, eða sá kannski einfaldlega ekki að vagninn er byggður upp af litlum sætapörum, ekki breiðum hægindastólum... Í þeim hópi væri kannski áðurnefndur Jón Róni, Klakinn minn o.fl. en þeir voru ekki í strætó í dag. ÓGILT Í ÞETTA SINN.
Eins og sjá má hef ég verið einstaklega umburðarlynd og víðsýn í úttekt minni og reynt að gera ráð fyrir hverjum þeim aðstæðum sem fólk er í, sem hamlað geta eðlilegu og kurteisu samlífi farþega. En niðurstaða mín hér í kvöld er því miður sú sama og hún var í dag þegar ég var að hugsa um að hlamma mér við hliðina á fólkinu sem fínu töskurnar sem þurfa sérsæti, hvort sem því líkaði betur eða verr: Það eru 3 dónar í þessum vagni!! DÓNAR!!! Og svo finnst mér að allir hinir í fullum vagninum hefðu átt að benda á þau og hía á þau: Kunnið ekki að vera í strætó, kunnið ekki að vera í strætó...

sunnudagur, nóvember 16, 2008

Sunnudagsgoggsblogg

Sunnudagar virðast vera einu dagarnir sem ég hef tíma til að hugsa og koma hugsunum í orð. Þá vitum við það, þarf enginn að koma hingað nema á mánudögum! Sparar ykkur sömu vonbrigði og ég finn stundum fyrir þegar mig langar í stutta afþreyingu en uppáhaldsbloggararnir mínir hafa ekki skrifað neitt nýtt. Enda augljóslega mikið vonbrigði þegar ég hef ekki bætt í bullið ;o)

Í gær var skrýtinn dagur. Ég fór að mótmæla/frysta af mér mínar löngu tær á Austuvelli og var það nú bara alveg ágætt. Ég hefði nú samt viljað meira stuð, meiri hróp og jafnvel eitt lag og svona... Þetta voru bara misgóðar ræður og vettlingað klapp! En kröfuspjöldin voru mörg góð. Ég fór bara ein að mótmæla, þrátt fyrir að þessi kreppa sé ekki farin að koma neitt sérstaklega við mig, stúlkubarnið sem ekkert á og ekkert skuldar (nema námslán og þau teljast ekki með). Þarf að fara að koma mér upp fleiri aðgerðarsinnandi vinum, það er nokkuð ljóst.
David hefur sett mig í raddlega gjörgæslu svo ég á að hitta hann daglega meðan hann er hér. Við höfðum ákveðið að hittast í hálftíma í gærkvöldi til að skerpa á atriðunum sem eru málið í dag. Hann var, að vanda, hálftíma of seinn en bætti það upp með því að gefa mér 80 mínútna tíma. Svo var hann að vandræðast með hvað hann ætti að borða og eitthvað, svo ég bauð honum heim í upphitað lasagne (sem ég hafði misst af meðan ég var í maraþontímanum). Hann sótti okkur bjór heim til sín og svo komum við hingað og hér var hann til klukkan 1! Við kjöftuðum, hlustuðum á söngvara á netinu, löguðum CVið mitt, ákváðum hvernig heimasíðan mín á að vera, sóttum um óperuverkefni fyrir mig og skemmtum okkur hið allra besta. Ekki alveg það sem ég hafði í huga, að eyða laugardagskvöldinu með hálfsextugum Breta haha En þar sem maðurinn notar hvert tækifæri til að kenna mér og leiðbeina var þetta aldeilis langur ókeypis söngtími.

Í dag er letidagur; tónleikar, söngtími og tiltekt á dagskrá. Reyndar get ég ekki hreyft vinstri handlegg án óþæginda, en ég verð þá bara helmingi lengur að taka til. Alveg kominn tími á sprautur í þetta bak mitt. Hrgmf.
Ég er enn með vinnu, þó svo að hún hangi stundum óþægilega mikið á bláþræði og enn með pláss í ræktinni þó svo að það verði sífellt skítugra í Hreyfigreiningu og að mér sýnist alltaf styttra í að batteríið deyi drottni sínum. Til dæmis er ekki lengur ljós í sturtunni. En það er kannski bara ágætt, því þá sé ég ekki plásturinn sem er búinn að vera þar síðan í október. En all in all gengur lífið bara sinn vanagang, fyrir utan það kannski að ég er farin að kaupa jólagjafir.

sunnudagur, nóvember 09, 2008

Another Sunday, another blogg

En ég er ekki þunn í dag, bara með hressandi harðsperrur. Rakst á einhvern blaðsnepil í ræktinni á föstudaginn, áætlun fyrir karla á "Sjá í tólin fyrir jólin" námskeiði, og ákvað að gá hvort ég gæti fengið að sjá tól fyrir jól með því að fylgja planinu. Það orsakaði fínindis harðsperrur og er ég bara himinsæl með það.

Annars er lítið að frétta af Vesturvígstöðvum, bara vinna og söngur og svefn að vanda. Keypti mér reyndar mjög spennandi bók til að hjálpa mér með áheyrnarprófin framundan svo nú hefst strangt prógramm við undirbúning, söng, leiklistaræfingar, sjónrænar vísbendingar og endurforritun stress-stöðvanna. Eða eitthvað ;o)

Þar sem ég hef ekkert að segja, ætla ég að leyfa mínum yndislega píanóleikara Sam Hutchings að eiga orðið, en hann setti upphaf síðustu blogg-færslu í þýðingarvél til að reyna að sjá hvað væri að gerast hér hjá mér. Það gekk ekki alveg nógu vel... Ég mæli með því að þið takið ykkur tvær mínútur í að bera textana saman, Bara snilld!!

Single with yellow metal frösunum whom flying last night. Karonina - sisterly fóru river kokteilatjútt and pleasance scrape together like that too terribly well. I var - búinn snuggle up to look forward to into poly- pumice snuggle up to taste kokteil whom samstarfskona my hafði sagt myself of and he pack of horses completely underneath namesake for all that thus snuggle up to mixerinn my ráði not accustom snuggle up to make klakakrap. trumpery Here analogous see us sisterly taste river þess vegna görótta drykk

sunnudagur, nóvember 02, 2008

Wir sind Deutsch, nicht blind!!

Einn af gull-frösunum sem flugu í gærkvöldi. Karonina-systur fóru á kokteilatjútt og skemmtu sér svona líka rosalega vel. Ég var búin að hlakka til í margar vikur að smakka kokteil sem samstarfskona mín hafði sagt mér frá og hann stóð alveg undir nafni þó svo að mixerinn minn ráði ekki við að búa til klakakrap. Drasl. Hér má sjá okkur systur bragða á þessum görótta drykk:


Eva sæta


Stórt hár er sko málið í dag ef þú vissir það ekki!

Við dönsuðum og sungum og trölluðum á skemmtistaðnum B7, eftir skipulagðasta partý-prógrammi norðan Alpafjalla:



Þegar í bæinn var komin kynnti Evilín mig fyrir mjög athyglisverðum stað þar sem sungið er í karókí, til dæmis hið sívinsæla lag W strazjem kmetz... Eftir að hafa sungið helstu pólsku slagara níunda áratugarins skelltum við okkur á dansgólf bæjarins. Fyrst eltum við ljúfa tóna Haddaway inn á 22 og þar dönsuðum við þar til hoppað var á tánum á Evilín -sem svaraði fyrir sig með hressilegu olnbogaskoti- og við ákváðum að haldið skyldi áfram áður en allt leystist upp í allsherjar slagsmál.
Næst á dagskrá var Ólíver þar sem hægt var að taka nokkra snúninga, Einsteina og Jakoba, allavega þar til gaur kom að dansa við okkur og varð svo spenntur yfir tindilfættum systrunum að hann prumpaði svakalegri prumpulykt yfir allt dansgólfið. Þá létum við okkur hverfa þaðan.
Þegar hálfnaktir eða óárennilegir karlmenn reyndu að nálgast okkur, gripum við til þýskunnar, eða einfaldlega gömlu góðu tækifærisblindunnar, og vart þarf að taka fram að fáfáfávitar í búningum áttu ekki séns.
Við enduðum að vanda á KB þar sem margt var góðra manna og endurfundir áttu sér stað í hverju horni. Ég hélt svo með gömlum vini á Apótekið þar tónlistin var svo óskaplega slæm, viðreynslan var mikil og klipið var hressilega í rassinn á mér! Hvur fjárinn er það?? Ég vil gjarnan hitta þær ungu konur sem styrkja rassaklípihegðun karlmanna á Íslandi. Einhver þarf að segja þeim að þær séu flón og að réttu viðbrögðin við slíkri hegðun séu ekki: Halló! Varst þú að klípa í rassinn á mér? Ok, eigum við þá að fara saman heim núna?

Þetta var djammskýrsla þessarar fyrstu helgar nóvembermánaðar 2008. All in all ljómandi skemmtilegt kvöld sem ég fer örugglega að hlakka til að endurtaka strax á morgun. Ekki í dag... Held að aldur og fyrri störf séu sífellt að hafa meiri áhrif á drykkjuþol mitt og hressleika eftir lítinn svefn. Það hjálpaði reyndar ekkert að ég vaknaði fyrir allar aldir við að nágrannarnir uppi voru að stunda mjög svo taktfast kynlíf. Lengi. Klukkan tíu á sunnudagsmorgni. Greinilega að ná sér í smá yl í kroppinn áður en haldið var til messu, blessaðar dúfurnar.