mánudagur, maí 26, 2008

Photoshop anyone??!?
Auglýsingar og slagorð Baðhússins leggja mikið upp úr því að hver kona sé falleg og sérstök. Á húsinu sjálfu eru myndir af misstórum allsberum konum í öllum gluggum til að leggja áherslu á málstaðinn og væntanlega til að vega á móti glanstímaritum sem gefa í skyn að konur verði allar að vera eins til að þykja flottar. Sem er bara hið allra besta mál! En af hverju í ósköpunum lítur eigandinn þá svona út á öllum auglýsingum?

sunnudagur, maí 25, 2008

Ég á mér eina uppáhalds rakspíralykt. Hún hefur alltaf þau áhrif á mig að ég hreinlega svíf þegar ég finn hana. Írinn minn fékk sér hana eftir að hafa séð hvað ég er heilluð af henni, og meira að segja eftir að í ljós kom hvað hann er mikill eðal kúkalabbi er lyktin að skila sínu. Lyktin hefur semsagt ekki tengst honum skilyrtum böndum heldur lifir enn sjálfstæðu lífi í þefstöðvunum. Hjúkk! Gekk framhjá manni á Kaffibarnum áðan sem bar þessa lykt og ég þurfti að halda mér í stigahandrið með báðum til að stöðva ósjálfráðu viðbrögðin mín. Sem vildu stökkva í fangið á honum og knúsa hann vikulangt! Sem betur fer nota ekki margir gaurar þessa lykt...

Ljómandi kvöld að baki og ég bara merkilega skynsöm og edrú miðað við innbyrgt áfengismagn. Eva mixaði kokteila af alkunnri snilld og dansinn var stiginn grimmt í Vesturbænum (myndir fljótlega). Eurovision úrslitin voru nú skandall en okkar fólk stóð sig þvílíkt vel. Það var gæsahúð á öllum útlimum í stofunni þegar þau sungu. Við fórum svo upp í bæ með Danni sinn og á Ólíver þar sem plötusnúðarnir reyndust tregari en meðal rottur. Hversu flókið er annars að átta sig á eftirfarandi: Spila lag sem allir þekkja og gólfið fyllist. Spila teknó lag sem ekki er hægt að syngja með og varla dansa við og gólfið tæmist. Þetta virtist vefjast eitthvað fyrir þeim blessuðum, en við tókum nú góðan snúning þegar færi gafst. Helga ætlaði svo að fara að kenna mér höstldans þegar ég hitti mann sem ég þurfti að eiga orð við, svo höstlið verður að bíða betri tíma ;o)

Annars er fátt títt úr Hlíð. Ég fór í atvinnuviðtal í morgun og fannst ég freklega blekkt þegar á hólminn var komið. Það er kannski bara ég, en er ekki einhver smá munur á því að svara í síma og prenta út reikninga, og að aðstoða við kjálkaskurðaðgerðir? Ég er kannski bara með eitthvað pjatt... En starfið mitt er alveg að koma, ég finn það á mér! Svo fer ég bara í söngtima til Davids, sem spurði mig um daginn hvort ástæðan fyrir því að ég þurfti að fara á bakspítalann í desember sl hafi verið öll aukaþyngdin sem ég var með?!?! Ehm.. Ég veit ekki hvort hann er að rugla mér saman við einhverja aðra eða hvað, ég kunni allavega ekki við að segja honum að ég er nákvæmlega eins í dag og ég var þá! Fínt að fá hrós fyrir að vera orðinn svona svakalega mjór hahaha

Jæja, best að fara að sofa í hausinn á sér! Nágrannarnir á móti byrjuðu að slá garðinn sinn klukkan hálf tíu í morgun og ég geri ekki ráð fyrir aukinni tillitssemi í fyrramálið.

XX

mánudagur, maí 19, 2008

Heyrðu já!

Mér leiðist Heyrðu-fólkið. Ég nota reyndar H-orðið aðeins of mikið en ekkert í líkingu við sumt fólk. Ég vann eitt sinn með einni Heyrðu-stelpu, sem sendi það meira að segja í smsum. Heyrðu, ég svaf yfir mig! Er á leiðinni! Botninum var þó náð áðan. Ég fór í pump tíma og kennarinn byrjaði allar sínar setningar á Heyrðu. Allar sínar setningar. Heyrðu, við byrjum á upphitun! Heyrðu, nú er það bakið! Heyrðu, þá eru bara teygjur eftir! Ég hef ekki hugmynd um hvað ég var að lyfta þungu í lok tímans, ég var orðin svo pirruð að mig langaði helst að labba út. Steininn tók þó úr í magaæfingum þegar hún sagði: Svo lyftum við hægri fótnum! Ég hugsaði með mér að nú væri ég eitthvað að misskilja, konan gat ekki hafa sagt þetta. Svo ég sneri mér við með eyrun sperrt, og hvað kom? Heyrðu, og nú lyftum við vinstri fótnum!
Manni hefnist fyrir að kaupa ódýrasta líkamsræktarkortið.
Ég var að vinna í Breiðholtinu um helgina og maður minn! hvað maður þarf að vinna upp sambýlisþolið sitt. Það var reyndar mjög gaman báða dagana, strákarnir í stuði og ég að vinna með uppáhaldssamstarfskonum mínum svo þetta var bara eins og standandi saumaklúbbur. Ok, kannski ekki alveg... En ég var eins og flón, sagði öll orðin sem á ekki að segja, skildi ekki tákn og bendingar og setti hluti á vitlausa staði hægri vinstri. En skemmtilegt er þetta, sérstaklega þegar maður sér framfarir og vellíðan í húsinu. Nú er bara að vona að það vanti helling á vaktir svo ég geti komið mér aftur í starfshæft stand og jafnvel fengið eins og tvö þúsund krónur í laun næstu mánaðarmót. Það væri nú lúxus!

Ég er varla að trúa því að það sé sól úti, ég átti engan veginn von á því þar sem mér var lofað rigningu alla vikuna. En ég lifi vonbrigðin af og hugsa mér gott til glóðarinnar fáklædd á fáknum. Verst að ég er ekkert á leiðinni í sund þar sem Dr.Ólöf hafði rétt fyrir sér varðandi greiningu á útbrotinu mínu. Það hefur nú fjölgað sér hressilega og þekur allstóran blett milli brjósts og nafla. Splendid. En til að standa undir Pollý-Önnu nafnbótinni hef ég fundið margar ástæður fyrir því að það er ekki alslæmt. Það þýðir til dæmis að:
- Ólöf er snilldarsjúkdómsgreinir og mun geta greint allt frá bleiuútbrotum til sárasóttar á næstu mánuðum sem starfandi heilsugæslulæknir, án þess að hika.
- Ég mun draga stórlega úr líkum mínum á sortuæxlum ef ég forðast sundferðir á bikiní.
- Ef ég drekk í mig kjark og fer í sundferð á bikiní mun enginn taka eftir bumbunni minni eða sígandi afturenda, því stökkbreytt húðin mun draga að sér alla athygli.
- Ég er ein af 0,14% fólks á þessum hluta jarðar sem fær þessa veiru. 14 af hverjum 10.000 manns. Með þessar líkur í farteskinu verður lítið mál að vinna Lottó á laugardaginn.
(Dr.Ólöf vildi líka finna því til framdráttar að þetta er ekki smitandi og ég þarf ekki að taka lyf. En þar sem ég hef ekki hugsað mér að nudda maganum upp við annað fólk á næstunni (var ég ekki búin að segja ykkur að ég er að fara að flytja í Hafnarfjörðinn?) og kýs frekar fljótvirkandi lyf en náttúrulega meðgöngutímann 4vikur-6mánuðir (!!) fá þær afsakanir ekki að vera með á listanum nema inn í sviga).

Eins og af ofantöldu má greina er ég lukkunnar pamfíll að hafa fengið þessa veirusýkingu og ég bið ykkur því vel að lifa á meðan ég valhoppa út í garð!
xx

fimmtudagur, maí 15, 2008

Þykir mér nú komið gott af atburðaleysi. Hér gerist bara andsk hafi það ekki neitt!

Átti reyndar ótrúlega ljúfan dag með Beanie minni í gær, hún kom í heimsókn með svaðalegar veisluveitingar og við sátum úti á svölum í rólegheitum þar til hún allt í einu leit á klukkuna og sá að hún var að verða 7! Það er nú meira sem maður getur kjaftað. Og eins gott að það hafi ekki verið börn með góða heyrn í nærliggjandi görðum híhí. Nú, við snöruðum svo í kvöldmat, horfðum á módel og kokka takast á í sjónvarpinu og fórum svo í ísbíltúr. Ég er ekki frá því að ég hafi fengið pínu lit í kinnarnar.

Annars er ég bara hér í Hlíð að gera f*** all. Hjóla mér í söngskólann að syngja og það gengur vel þó ég geri ekki alveg nógu mikið af því. Verst að ég skuli ekki hafa lært á píanó í staðinn fyrir háls, maður getur æft sig miklu miklu lengur á píanóið í einu en á hálsinn. Svo ákvað ég loksins hvar ég ætla að æfa í sumar og keypti mér ræktarkort í gær. Ég hef þá TVENNT að gera á dag! 100% aukning!

Í atvinnuleitinni er ekkert að gerast, ég tékka netið fram og til baka á hverjum degi og sæki um allt sem ég get mögulega, jafnvel með góðri teygju á ímyndunaraflinu, hugsað mér að vinna við. Annars er ég bara að þvo þvott og hekla og spjalla á msn. Ósköp ljúft ef maður er í fríi en þegar maður er að bíða eftir einhverju sem maður veit ekki hvað er, og þykjast vera voða salí og ekkert stressaður er þetta ekkert mjög skemmtilegt. Sólin getur þó bjargað mér ef hún nennir, þá gæti ég nú skellt mér í sund eða farið í langan hjólatúr. Þar fyllast þá nokkrir klukkutímar á einu bretti!

mánudagur, maí 12, 2008

Miss Georgsdottir plus one

Mér þykir gaman í brúðkaupum. Brúðurin falleg sem aldrei fyrr, maður öðlast smá trú á ástina og allir eru svo glaðir og góðir. Það er langt síðan ég hef farið í brúðkaup þar sem ég þurfti ekki að troða upp, en mér þykir ótrúlega gaman að fá að framkvæma slíkan gjörning. Eitthvað alveg magnað við að taka þátt í þessum stærsta degi lífs margra. En á sama tíma mjög, mjög glatað þegar maður stendur sig illa. Ég söng til dæmis einstaklega illa í brúðkaupi síðastliðið sumar og fæ enn í magann við að hugsa um það. Það verður þó ekki framhjá því litið að brúðkaup eru mjög paramiðaður viðburður. Flestir gestir koma í pörum, borðaskipan er í takt við það og í fyrra fór ég í brúðkaup þar sem pör voru ljósmynduð saman undir blómasveig. Í fyrra átti ég kærasta, en hann var ekki á staðnum svo ég þurfti að fá lánaðan kærasta fyrir myndatökuna. Ef ég skipaði stærri sess í lífi brúðhjónanna hefði ég vafalaust bara staðið ein og stolt, en eins og aðstæður voru fannst mér það eitthvað aðeins of glatað. Nú er á döfinni brúðkaup góðrar vinkonu og ég hlakka mikið til. Ég óska þess þó í tengslum við þann viðburð að ég hefði eins og einn kærasta til að snara á handlegginn á mér. Ég þekki ekki nefnilega engan í samkvæminu nema brúðina og hún verður kannski ekki laus í mikið spjall. Brúðgumann hef ég ekki litið augum enn, hvað þá aðra fjölskyldumeðlimi og vini. Ég veit að þetta verður frábær dagur og ég mun bara kynnast fullt af fólki, sérstaklega þar sem ég treysti brúðinni fullkomlega til að umvefja mig skemmtilegu fólki í sætaskipan. En þetta vekur mig óneitanlega til umhugsunar um fólk sem aldrei hefur fundið sér maka. Er kannski komið vel yfir miðjan aldur og þarf alltaf að fara allt eitt. Tilhugsunin um að bjóða fólki að taka vin með er eitthvað svo absúrd, af hverju ætti einhver vinur að taka þátt í stærsta degi lífs brúðhjóna sem aldrei hafa séð hann? Af hverju á einhver vinur að fá mat og drykk í þeirra boði? En ef það væri óséður kærasti þætti það ekkert tiltökumál. Merkilegt.

(Best að taka það fram að ég er ekki að sníkja boðskort fyrir vinkonu í brúðkaup sumarsins ;o) )

sunnudagur, maí 11, 2008

Barbie heiti ég og ég er yndisleg
Borða pasta gert úr plasti (sic)
Barbie heiti ég og flestum finnst ég treg
Falleg klæði, ég er algert æði!


Datt inn í Stundina okkar og þetta lag hljómaði úr munni vel sminkaðrar stúlku. Fallegt.

Annars er lítið títt úr Hlíð. Ég skemmdi eitthvað á mér bakið svo ég er í miklum rólegheitum í dag, teygi bara á mér af og til og fór í göngutúr. Bakið hefur verið skakkt síðan í gærmorgun, gæti verið afleiðing þess að ég kíkti út á lífið á föstudagskvöldið. Bauð hingað órfáum hræðum og svo kíktum við á B5 og Ölstofuna. Ósköp notalegt. Ég hitti þennan líka fína verkfræðinema sem var næstum jafn fyndinn og skemmtilegur og ég, ótrúlegt en satt! Við ætluðum að kíkja saman í eftirpartý (alvöru sko, ekki það sem er bara fyrir 2. Held ég. Vona ég!) en svo þegar við komum út af ÖS lenti hann bara í slag drengurinn! Ég hef bara aldrei vitað annað eins! Veit ekki hvort þetta átti að heilla mig, eða hvort þetta var hans innri maður að brjótast út. Ég allavega lét mig hverfa með det samme og labbaði heim. Þar útskýrist bakbæklið, því ég var á háum hælum. Mér finnst bara svo blóðugt að borga marga þúsundkalla í taxa þegar það er bjart og hlýtt og maður er bara 20 mín að rökkla... Og ég sá enga vonda kalla á leiðinni! En mamma skammaði mig svo mikið áðan að ég mun sko taka leigubíl heim eftir systratjútt í kvöld, þori ekki öðru.

fimmtudagur, maí 08, 2008

Eiturlyfjaávextir

Fór í viðtal á ráðningarstofu í gær. Í huganum þakkaði ég Kidda Sérsveitaryfirmanni mínum fyrir skrýtin viðtöl í gegnum tíðina, því ég var undirbúin fyrir allar skrýtnu spurningarnar og þaulæfð í að láta gallana mína hljóma sem kosti ;o)
Við Eva stússuðumst smá og svo stússuðumst við Ólöf smá. Ég er voða þakklát fyrir allt sem hægt er að dröslast með mig, svona eins og gömul frænka sem fer ekki út á eigin vegum, en nú hlýtur sólin að fara að sigra regnið svo ég get farið að hjólast af viti. Ólöf bauð mér svo með sér í ræktina, fyrsta skipti fyrir mig í leikfimisal í rúmt ár, og ég finn það sko í dag... Bara gott! Get ekki beðið eftir að eignast smá pening svo ég geti komið mér í gang aftur! Svo fórum við heim í fáranlega fullkomnu íbúðina hennar og skelltum okkur í sturtu (ekki saman. Róleg), borðuðum eðal kjúlla, skoðuðum undarleg útbrot (hún á mér), horfðum á skrýtinn stelpu-sjónvarpsþátt, skárum hluta úr þumlinum á okkur (það mun hafa verið ég. Meira að segja hnífarnir eru fullkomnir heima hjá Ólöfu) og kjöftuðum fyrir peninginn. Yndislegt!
Hér í Hlíð er enn verið að flytja tónverkið Nágrannar, sögin komin af stað rúmlega átta, börn að gráta, hundur að gelta og menn að kallast á. Hingað til hefur kvenöskur bæst í samspilið þegar líður á daginn, en ég held að öskurapinn fari bara í söngskólann í dag fyrst það rignir ekki.

mánudagur, maí 05, 2008

Var det kun en dröm??

Líður svolítið þannig, eins og undanfarin 3 ár hafi ekki átt sér stað. Hér er ég nú, heima í Hlíð, búin að ganga frá öllu í hillur og hirslur og það er bara eins og ég hafi aldrei farið. Ég reyni að telja mér trú um að ég hafi eitthvað breyst að innan, jafnvel lært eitthvað sem ég ekki kunni áður, en ég er barasta ekki alveg viss í dag.

Ég lenti á landinu í gærkveldi og hafði aldeilis rósrauða drauma fyrir daginn í dag. Ég ætlaði að sofa út, þar sem lítið fór fyrir svefni við tilfinningasveiflur og drykkjuskap kveðjudaganna í Rottuborg, og svo ætlaði ég í langa sturtu þar sem öll krem og smyrsli móður minnar yrðu notuð, kroppurinn og hárið skrúbbuð eins og aldrei er hægt í rafmagnssturtum og amk 3 aríur beltaðar undir stríðum straumi heita vatnsins. Það fór ekki svo.

Höfðagafl rúmsins míns stendur við ó-einangraða hurð sem liggur fram á gang og þar sem nágrannarnir uppi standa í ströngu við endurbætur á íbúð sinni virðist vera opið inn til þeirra. Þar var horft á sjónvarp fram eftir nóttu og ég sofnaði ekki fyrr en glápinu lauk. Klukkan hálf níu vaknaði ég svo við að þessir sömu nágrannar voru farnir að saga einhverjar plötur úti í garði. Það fór þvi lítið fyrir svefni. Ég druslaði mér loks á lappir og hlakkaði mikið til að fara í sturtuna sem ævintýri eru skrifuð um. En nei!! Þá höfðu aðrir nágrannar skrúfað fyrir vatnið! Þar með var rómantíska hugmynd mín um fyrsta daginn heima farinn í vaskinn og ég eyddi morgninum á náttfötunum að ganga frá farangrinum. Þegar engan hefði getað grunað að heimasætan hefði aðeins dvalist í herberginu í nokkra klukkutíma kom vatnið loksins aftur og ég fór í sturtuna. Hún var biðarinnar virði skal ég segja ykkur. Og ég er svosem voða fegin að vera búin að ganga frá. Ég fékk svo Helgu mína í heimsókn og fór í smá göngutúr um Hlíðarnar áður en ég bakaði pizzu handa okkur mæðgum. Ég naut þess svo skammarlega mikið að vaska upp með heitu vatni beint úr krananum! Vatni sem þurfti ekki að sjóða, þvílíkur lúxus! Og þá er ég bara að tala um þá hluti sem ekki treysta sér í uppþvottavélina! Vúhú!!

Á morgun rennur upp nýr dagur og ég mun syngja og leita að vinnu eins og vindurinn. En nú eru það eyrnatappar og koddinn yfir haus. Nighty night!