mánudagur, maí 12, 2008

Miss Georgsdottir plus one

Mér þykir gaman í brúðkaupum. Brúðurin falleg sem aldrei fyrr, maður öðlast smá trú á ástina og allir eru svo glaðir og góðir. Það er langt síðan ég hef farið í brúðkaup þar sem ég þurfti ekki að troða upp, en mér þykir ótrúlega gaman að fá að framkvæma slíkan gjörning. Eitthvað alveg magnað við að taka þátt í þessum stærsta degi lífs margra. En á sama tíma mjög, mjög glatað þegar maður stendur sig illa. Ég söng til dæmis einstaklega illa í brúðkaupi síðastliðið sumar og fæ enn í magann við að hugsa um það. Það verður þó ekki framhjá því litið að brúðkaup eru mjög paramiðaður viðburður. Flestir gestir koma í pörum, borðaskipan er í takt við það og í fyrra fór ég í brúðkaup þar sem pör voru ljósmynduð saman undir blómasveig. Í fyrra átti ég kærasta, en hann var ekki á staðnum svo ég þurfti að fá lánaðan kærasta fyrir myndatökuna. Ef ég skipaði stærri sess í lífi brúðhjónanna hefði ég vafalaust bara staðið ein og stolt, en eins og aðstæður voru fannst mér það eitthvað aðeins of glatað. Nú er á döfinni brúðkaup góðrar vinkonu og ég hlakka mikið til. Ég óska þess þó í tengslum við þann viðburð að ég hefði eins og einn kærasta til að snara á handlegginn á mér. Ég þekki ekki nefnilega engan í samkvæminu nema brúðina og hún verður kannski ekki laus í mikið spjall. Brúðgumann hef ég ekki litið augum enn, hvað þá aðra fjölskyldumeðlimi og vini. Ég veit að þetta verður frábær dagur og ég mun bara kynnast fullt af fólki, sérstaklega þar sem ég treysti brúðinni fullkomlega til að umvefja mig skemmtilegu fólki í sætaskipan. En þetta vekur mig óneitanlega til umhugsunar um fólk sem aldrei hefur fundið sér maka. Er kannski komið vel yfir miðjan aldur og þarf alltaf að fara allt eitt. Tilhugsunin um að bjóða fólki að taka vin með er eitthvað svo absúrd, af hverju ætti einhver vinur að taka þátt í stærsta degi lífs brúðhjóna sem aldrei hafa séð hann? Af hverju á einhver vinur að fá mat og drykk í þeirra boði? En ef það væri óséður kærasti þætti það ekkert tiltökumál. Merkilegt.

(Best að taka það fram að ég er ekki að sníkja boðskort fyrir vinkonu í brúðkaup sumarsins ;o) )