laugardagur, apríl 05, 2008

Þetta er búið að vera skrýtin Íslandsheimsókn. Vesturferð og veikindi standa upp úr, svo og afmæli og menning. Voða mikil menning eitthvað. Fór á Travíata þegar ég kom, á Aldrei fór ég suður, Rocky Horror og svo á Cosí hjá óperustúdíóinu áðan. Það var bara mjög gaman, verst að vera ekki að syngja sjálf!
Eftir óperu og Vegamótamat fór ég í partý til Ólafar og Sigga. Frekar mikið flott nýja íbúðin þeirra, verst að hún var full af læknanemum ;o) Ég fékk nasasjón af því hvernig er örugglega að koma í söngpartý, einhvernveginn liggja allir vegir og öll umræðuefni að því sem er helst á dagskrá. Skiljanlega! En eftir einum of marga útferðar- og legvatnsbrandara með tilheyrandi handapati og leghálsskoðunarlátbragði (þau voru sko að klára kvenlækningakúrs) ákvað ég að setjast út á kant með krosslagða fætur. En ég fékk fína kviðskoðun af gestgjöfunum svo ég þarf ekki að láta tékka á því á næstunni.
Labbaði svo heim, enda vel búin í kuldanum. Mikið er gaman að labba heim og vera svolítið einn í heiminum. Þegar ég labba heim svona á kvöldin í Rottuborg er ég umvafin fyllisvínum og fólki sem þvælist fyrir mér og vill fá pening eða sígarettur eða knús. Ágætis tækifæri til að hugsa smá á meðan hvítvínið fraus úr líkamanum.
Ég hverf nú aftur til Rottuborgar en kem mjög fljótt aftur og þá til að vera í einhvern tíma. Hvað ég er að fara að gera hér veit ég ekki, en í fyrsta skipti á Íslandi verður gaulið sett í forgang! Hvað sem það kostar!