föstudagur, mars 28, 2008

Lasin Lasnari Lösnust

Það var ekki svona sem ég sá fyrir mér fríið góða á Íslandi: Með tæplega 40 gráðu hita í svitabaði og með kvef sem lætur öll önnur kvef líta út eins og smá kitl í hálsinn. Einu samskipti mín við umheiminn undanfarna daga hafa verið í gegnum sms eða msn þegar vel liggur á, þar sem ég er ekki í besta ástandinu til að spjalla. Ég sem ætlaði að þeysast á hjólhestinum góða á milli heimsókna, hádegisverðarhittinga, kaffibolla og bjórsöturs (en ekki á hjólinu í svoleiðis, ég veit það er bannað!). Einnig veitti mér ekkert af því að syngja eitthvað ef ég ætla að fara í nokkra söngtíma í næstu viku. Það að fara í söngtíma eftir að hafa ekki sungið í rúma viku er nefnilega í besta falli vandræðaleg tíma-og peningaeyðsla.

Á björtu hliðinni er þó skömminni skárra að vera veik hér. Án þess að tala neikvætt um sambýlismanninn á nokkurn hátt, enda er hann manna besti sambýlismaður, jafnast enginn á við mömmu í aðhlynningu... það er alveg sama hvað maður biður um skrýtna hluti úr búðinni, þeir birtast á náttborðinu skömmu síðar sama dag! Ég er orðin nær hitalaus núna, Gud ske lov, svo ef ég held áfram að svitna eins og svín og anda að mér heitri vatnsgufu ætti ég að geta tæklað eitt afmælistjútt á morgun. Í versta falli fer ég bara ekki í bæinn, enda er það alltaf pínu let-down eftir gott partý hvort eð er ;o)

Fólk hefur viljað tengja veikindi mín eitthvað við Vesturför mína en ég vil ekki heyra á slíkt minnst! Vesturförin var frábær í alla staði, ekki hægt að segja annað þegar einu umkvörtunarefnin eru of margar marengstertur og að 'einhver' notaði tannburstann minn. Ég kíkti á Aldrei fór ég suður og það er óhætt að segja að ég er enn meiri Hjálma-aðdáandi núna og orðinn nýr Mugison aðdáandi. Snillingar. Svo gladdi Jói frændi aldraða frænku sína með því að bjóða henni í leikhús sem innihélt heilan hóp af hálfnöktum ungmennum að syngja 'Tökum eitt tíðhnitið enn...' Ég sæi mig í anda, 18 ára hálfnakta að halda lagi fyrir framan 130 manns. Sæi mig í anda 27 ára mind you!!! Eintómir snillingar þarna fyrir vestan og geta ómögulega borið ábyrgð á því að ég er flensuflón.

Nú er bara að krossa fingur og vona að ég batnist á næstu klukkutímum svo ég geti litið sómasamlega út á morgun, sungið eitthvað í hausinn á mér og hitt eitthvað af þessum vinum sem ég þykist eiga hér. Annars verð ég bara að heimta heimavitjanir!!

Toodles!