Þunn? Ég? Neinei bara smá... Í gær var lokahóf sumarvinnunnar. Reyndar gleymdist að láta mig vita af því (einmitt) en Sara yndi hringdi í mig og reddaði málunum. Hæ ætlarðu ekki að mæta á eftir? Mæta hvert? Nú lokahófið...það byrjar eftir einn og hálfan tíma! Eins gott að ég er ekki lengi að kæla ölið og skella mér í átfittið ;-) Skemmtilegt kvöld þrátt fyrir þetta, merkilegt hvað allir eru miklu skemmtilegri þegar það er ekki rigning og enginn þarf að sitja í blautu moldarbeði. Fengum gott að borða á Tapas, þó svo að ég hefði alveg getað borðað aðeins meira... það er svona að vera botnlaus. Svo var farið á Viktor þar sem hinir ýmsustu kokteilar voru smakkaðir. Sumir verða definetely smakkaðir aftur en aðrir ekki svo mjög. Ég stakk af fljótlega eftir þetta, ætlaði reyndar að koma aftur en það fór eitthvað aðeins öðruvísi ..hmm.. Bara gaman að því.
Dagurinn í dag fer í það að liggja undir feldi og velta því fyrir mér hvað í ósköpunum ég ætla að gera af mér í vetur; það eina sem er pottþétt er að ég verð í ítölsku í MH og ég ætla í magadans. Allt annað, og ég meina ALLT annað, verður bara að koma í ljós. Ég er búin að skuldbinda mig til að gefa lokasvar á mánudaginn svo það er eins gott að andinn komi yfir mig asap.
ps. Herra Undirtré sagðist sem sagt endilega vilja fá mig í post-grad en því miður er allt fullt þetta árið. Hann er kominn á svarta listann minn.