Í dag var fyrsti frídagurinn minn. Það er að segja fyrsti virki dagurinn eftir að vinnunni lauk og Túninu var formlega 'lokað'. Ég vaknaði fyrir klukkan átta og gerði mig mannsæmandi útlits áður en ég rölti í bæinn. Þar átti ég tíma í mjög mjög mjög langþráða klippingu og litun kl.9. En viti menn, tíu mínútur í 9 er hringt í mig og mér tjáð að klippigellan sé veik. Og þarna stóð ég, fín og sæt á röltinu á Laugaveginum fyrir klukkan 9 fyrsta frímorguninn. Ekki sátt. En í 'sárabætur' fékk ég tíma á morgun klukkan 10 sem þýðir að ég þarf aftur að vakna snemma. Símakonan tók það sérstaklega fram að ég fengi tíma hjá meistara. Fín flott æðislegt en breytir því ekki að ég vaknaði til einskis í morgun :-( Djöfull hlakka ég samt til að fara í litun á morgun, alveg kominn tími á að losna við þetta veðraða útivistar barbíhár.
mánudagur, ágúst 16, 2004
Previous Posts
- Það er sko bara útlenzkt veður í Reykjavík í dag! ...
- I feel pretty, oh so pretty! I feel pretty and wit...
- Ég gleymdi að segja að ég er RÍK!!! Fékk heilar 40...
- Og þá er Verslunarmannahelginni lokið. Það er nú á...
- Við stelpur erum nú svolítið sorglegar stundum. Ég...
- Haldiði ekki að blauti leiðbeinandinn sé búinn að ...
- Ég er svo mikill ilbert... Ég finn ekki veflykilin...
- Leitin að manninum í gráu úlpunni -spennusaga án e...
- Er verið að grínast með þetta veður? Vá hvað ég er...
- Speki augnlæknisins Ég, eins og margir aðrir, á þ...

<< Home