Það er sko bara útlenzkt veður í Reykjavík í dag! Ekkert smá hlýtt og rakt loft...alveg notalegt. Ég er nú reyndar heldur tuskuleg þar sem í dag er 2. í þynnku. Sem er alltaf skemmtilegur dagur. Reyndar ekki eins skemmtilegur og 2. í jólum en nálægt því :-) Það er svona að vera fyllisvín og sofa svo mjöööööög lítið í þokkabót...2 nætur í röð. Og áður en þið farið að láta ykkur detta í hug skemmtilegar ástæður fyrir því að ég fer seint að sofa skal ég segja ykkur það að ég vaknaði kl.9 (já 9) í gærmorgun við borandi nágranna. Mjög skemmtilegt, sérstaklega í ljósi þess að ég sofnaði klukkan 6. Ekki edrú. Og svo í gærkvöldi var ég svo stressuð yfir því að geta ekki sofnað og vera allt of þreytt í vinnunni í dag að ég gat ekki sofnað og var allt of þreytt í vinnunni í dag. Snjallt.
Ég fór sem sagt með Dóru, Dagnýju og fleiri skvísum á tjúttið á laugardaginn og það var alveg gaman! Danced my ass off (eða því sem næst...) á Hressó; Eurovisionsigurvegarinn Rúslana vakti sérstaka lukku ;-) Við Dóra reyndum að lífga einhvern glataðan Kana af beisinu við en hann höndlaði ekki svona miklar kjarnakonur svo hann stakk bara af. Við vorum mjög miður okkar en tókum gleðina á ný þegar við hittum mikinn herramann úr Kvennó. Svo fór ég bara beint heim, fékk mér grillbrauð og þegar ég hafði fullvissað mig um það 4 sinnum að ég hefði örugglega tekið grillið úr sambandi gat ég farið að sofa. Í 3 tíma. Stupid neighbours. Allavega, góð hommahátíðarhelgi -þær ættu að vera oftar!

<< Home