Ég er svo mikill ilbert... Ég finn ekki veflykilinn minn frá rsk svo ég get ekki tékkað á því hvað ég fæ mikið til baka frá skattinum (tók einhver eftir því hvað ég er bjartsýn??). Þannig að ég verð að bíða þar til póstpersónan kemur með það til mín (tók einhver eftir því hvað ég er politically correct??). Sem verður örugglega ekki fyrr en eftir helgi. Helgin sem stefnir btw í mestu stuð-verslunarmannahelgi aldarinnar, ég býð ekki í það hvernig ástandið verður á mér þegar vinna hefst á ný. En ef veðrið verður aldrei svona leiðinlegt eins og í dag það sem eftir er í sumar skal ég aldrei aftur kvarta yfir vinnunni (tók einhver eftir því hvað ég lofaði upp í ermina á mér??) ;-)
fimmtudagur, júlí 29, 2004
Previous Posts
- Leitin að manninum í gráu úlpunni -spennusaga án e...
- Er verið að grínast með þetta veður? Vá hvað ég er...
- Speki augnlæknisins Ég, eins og margir aðrir, á þ...
- Ætli það sé til eitthvað skilnaðargen? Svona gen s...
- Ég er á leið til Skotlands eftir rúman mánuð! Þar ...
- Sko. Ég veit að ég er komin á trúnó-stigið og ég v...
- Ég fór í mat til Dóru í gær og það var alveg gaman...
- Ég var að fá tölvupóst frá fínni frú hér í bæ sem ...
- Afsakið hlé Hvað er málið með þennan skítakulda? ...
- Ég lenti á kjaftatörn við góða vinkonu mína í gær....

<< Home