miðvikudagur, júlí 14, 2004

Ég var að fá tölvupóst frá fínni frú hér í bæ sem hefur titilinn deildarstjóri söngdeildar. Flottur titill ha? Mér finnst það. En hins vegar undrar hann mig eilítið. Söngdeild meikar sens í skólum þar sem kennt er á ýmis hljóðfæri auk söngs. Þá er tréblástursdeild og málblástursdeild og strengjadeild og svo framvegis og mjög mikilvægt að skipta þessu niður í deildir. Fína frúin sem ég er að tala um er hins vegar deildarstjóri söngdeildar í Söngskólanum í Reykjavík. Hvaða deildir eru í Söngskólanum aðrar en söngdeild?