mánudagur, júlí 05, 2004

Það er einn ungur maður hér í bæ sem tók áskorun fyrir nokkru síðan. Áskorunin fólst í því að ungi maðurinn á að finna þessa síðu. Það er ekki mjög auðvelt þar sem hún er ekki skráð undir mínu nafni eða fæðingardegi, en honum ætti samt að reynast það tiltölulega auðvelt. Ég tala nú ekki um þar sem ungi maðurinn vinnur við tölvu allan daginn. Og er tölvunörd. Nú er hins vegar liðið svo langt frá áskoruninni að ég er farin að halda að ungi maðurinn hafi gefist upp! Og það er ekki hátt skrifað í minni sveit...