Ég lenti á kjaftatörn við góða vinkonu mína í gær. Við getum talað um allt milli himins og jarðar en í gær, eins og stundum áður, fór umræðan að snúast um samskipti kynjanna. Við vorum mikið að spá í af hverju fólk gerir svona mikið mál úr því hvað makinn hefur verið með mörgum á undan sér. Brandarann með að ef gaurinn segist hafa sofið hjá 10 eru það í alvörunni 5 en ef gellan segist hafa sofið hjá 10 eru það 20 og allt það. En hvað er málið? Skiptir það einhverju máli hvar makinn hefur eða hefur ekki verið? Það er fyrir utan hættuna á sjúkdómum og margföldum meðlagsgreiðslum... Ég held að fortíðin eigi ekki að skipta máli, við erum öll eins og við erum vegna fortíðar okkar og hún er hluti af því sem gerir okkur heillandi. Ef makinn hefur sofið hjá fáum þýðir það þá ekki bara að hann taki því ekki létt að stökkva með fólki upp í rúm? Og ef hann hefur sofið hjá fleirum en flestir er það þá ekki hrós um þína hæfileika að hann vilji sofa hjá þér til frambúðar? ;) Þið vitið hvað ég meina.
Á hinn bóginn (af því að ekkert er einlitt)... Ef makinn hefur bara sofið hjá einum aðila og verið með honum í 15 ár er kannski ástæða til að vanda sig mjög vel; það er erfitt að standast samanburð við einhvern sem þekkir manneskjuna inn og út. Og ef þér er óskað til hamingju með að vera Lucky Number 100 er kannski líka ástæða til að skoða málið. En að öðru leiti held ég að þetta sé ekki neitt til að hafa áhyggjur af. Mér finnst að fólk ætti bara að hætta að velta sér upp úr þessu og einbeita sér frekar að líðandi stund, tölfræðin er aukaatriði.

<< Home