miðvikudagur, júlí 14, 2004

Ég fór í mat til Dóru í gær og það var alveg gaman. Við bara tvær að spísa og snakka, ótrúlega kósí. Ég skil ekki af hverju við gerum þetta ekki oftar... Kom reyndar svolítið seint heim og er lúin í dag. Það er allt í lagi en á morgun verð ég að vera spræk like a dyke! Þá er nefnilega Sumarhátíð Vinnuskólans (HÚRRA) og þá mæta þúsund unglingar í Laugardalinn og éta pylsur. Það verður mjög gaman að reyna að halda mínum ekki svo mjög óvirku starfsmönnum á sama stað. Ef þið viljið sjá mig leika konu á barmi taugaáfalls komið þá í Laugardalinn á morgun! Nei annars. Þá fjölgar fólkinu enn meir... bíðið bara eftir sögunni hér takk :)