föstudagur, janúar 31, 2003
æææ hvað ég er þreytt í dag, gott að það er að koma helgi. Lenti á kjaftatörn seint í gærkvöldi við Pésa litla. Fyndið samtal, byrjaði þannig að ég tjáði skoðun mína á hans málum umbúðalaust og endaði þannig að hann tjáði skoðun sína á 'geðsjúklingunum sem mótmæla Kárahnjúkavirkjun' umbúðalaust. Þá fór ég að sofa :-) Uppgötvaði áðan að það er fínasta nuddtæki á sturtuhausnum okkar. Og áður en þið farið að flissa perralega tek ég það fram að ég notaði það á harðsperrurnar á milli herðablaðanna. Alveg ágætis nudd svo ég sé fram á að þrauka þar til nuddarinn minn kemur heim úr útlegðinni... Ég er eitthvað svo mikið að hlusta á Eminem þessa dagana því Eva er búin að vera að downloada lögin hans í hrönnum. Held samt að ég sé að breytast í kvenfyrirlítandi karlrembu hægt og sígandi. ...I do know one thing though, bitches they come they go... Þetta getur ekki verið hollt. Held ég verði að smella smá 'Ég á mig sjálf' á fóninn til að vega upp á móti þessum heilaþvotti. Frá og með núna og þar til á þriðjudaginn verður allt sem ég skrifa á þýsku. Consider yourself warned.
fimmtudagur, janúar 30, 2003
Það er ókunnug dama í gestabókinni minni, fallegt af henni að stimpla sig út hjá mér. Það er alltaf að bætast í hópinn af fólki sem ég má ekki tala illa um hér... Sem er bara mjög gott.
Þetta var nú langur dagur. Langur og strangur. Langur og strangur og erfiður. En nú er hann búinn og það er gott. Litli skjólstæðingurinn minn var ekki mjög hamingjusamur í dag og þar af leiðandi ekki ég heldur. Við fórum í langan göngutúr sem gekk út á það að ég reyndi að fá hann inn úr kuldanum og hann ignoraði mig. Eins og venjulega :-) Fór í body combat eftir vinnu og svitnaði ærlega. Spurning hvort ég var að taka vel á því eða hvort það var af því að það voru þúsund gellur inní pínulitlum sal... Svo fór ég á snilldartónleika hjá 4Klassískum, þær eru ekkert smá flottar. Björk er náttúrulega flottust en kannski er það bara af því að hún er kennarinn minn. Nú var ég að kaupa My Fair Lady nótnabók á netinu, ýkt spennandi og svo er það mitt heittelskaða ból í smá stund áður en föstudagurinn rennur upp. Vonandi dreymir mig Heiðmerkurferð.
miðvikudagur, janúar 29, 2003
MRL og bodypump í gær, brjáluð brennsla í morgun... Ég er garpur. Garpur með harðsperrur. En ég er mjög montin af bakinu mínu fyrir að hafa staðið í sig í pumpinu í gær og í vinnunni í dag :-)
Rottweilerhundarnir fá stóran plús fyrir fyndni en feitan mínus fyrir að stríða Sigurði, ég hef einkarétt á því ;-) Írafársliðarnir svara að sjálfsögðu fyrir sig með stæl, enda má ekki láta skemma fyrir sér ímynd sem maður hefur unnið mikið og lengi fyrir.... Nú segið þið örugglega hátt og snjallt Who cares? og það er alveg rétt hjá ykkur. Þar sem rottweilerarnir sjá um reiðu unglingana og írafársgengið sér um gelgjurnar sé ég enga þörf fyrir bögg þeirra á milli. Bara svona að leyfa ykkur að fylgjast með í poppbransanum :-)
Samkvæmt Ólöfu er ég fáfróður auli. Ég er ekki sátt.
þriðjudagur, janúar 28, 2003
Nú veit ég hvenær ég dey. Það mun gerast föstudaginn 13.júní 2059. Þá verð ég orðin 79 ára svo það er nú kannski ásættanlegt, ég þarf amk ekki að hafa áhyggjur þessa dagana. Þið ættuð þá kannski að taka fimmtudaginn 19. eða föstudaginn 20. frá svo þið getið örugglega mætt í jarðaförina. Eins gott að mæta snemma því það verður troðið :-) Ef þið viljið vita ykkar dánardag getið þið gert það hér en það er bannað að vera svo miður sín í allan dag!
mánudagur, janúar 27, 2003
Ég ætlaði í brjálaða brennslu í morgun en þegar vekjarinn hringdi 6.20 gat ég ómögulega farið á fætur, ekki séns! Svo hér er ég hálfklædd að reyna að koma mér í að gera eitthvað, hvað sem er af viti. Held ég leggist inn í sófa og hlusti á klassíska tónlist undir því yfirskyni að ég sé að læra fyrir hlustunarprófið sem er klukkan 5 í dag.
Halló við erum ungt par á uppleið. Þegar við erum klædd lítum við út eins og hvert annað par, meira að segja frekar nördalegt par, en þegar við klæðum okkur úr... Hér er mynd af okkur.
sunnudagur, janúar 26, 2003
Bloggið mitt er að fá þvílíkar auglýsingar hjá honum Herði Mar. Hvað get ég sagt Hörður minn nema að þú hefur rétt fyrir þér eins og venjulega...
Aumingja ég í dag! Ég er með klikkaðar harðsperrur í bakinu og þær eru ekki tilkomnar útaf einhverju skemmtilegu heldur bara extra miklu workouti í gær (5 kílóin muniði...). Svo er það ritgerðin ógurlega og undirbúningur fyrir hlustunarpróf í dag. I love my life.
Talandi um gymmið... Hvað er málið með gellur sem raka sig í Baðhússturtunni? Oj barasta! Án gríns, það eru sumir hlutir sem maður einfaldlega gerir ekki utan fjögurra veggja heimilisins. Langar mig að standa í ökkladjúpu vatni fullu af klofhárum annarra? NEI! Það var ein sköfuóð í sturtunni við hliðina á mér í gær og ég leit á hana og sagði: Ertu ekki að grínast? Hún leit sakleysislega á mig til baka og svaraði: Já en ég er bara að raka mig undir höndunum. Halló! Mér er nákvæmlega sama hvaða hár þú ert að fjarlægja af skrokknum á þér, mig langar ekki að komast í snertingu við þau, aldrei! Ógeðslegar kellingar.
Ég fór á óperettuæfingu í gær og var þar í klukkutíma. Á þeim tíma gekk ég þrisvar þvert yfir salinn án þess að segja orð. Það var mitt hlutverk í gær. Þetta er það sem mig langar til að eyða starfsævinni minni í. Ég er skrýtin. Kíkti til Ólafar í gær þar sem vinkonur hennar og einn kærasti sátu og sötruðu ljúffenga bollu. Svo keyrði ég þær skrækar og glaðar á Spotlight og óskaði þeim góðrar skemmtunar áður en ég fór heim að sofa. Ég var mjög stolt af viljastyrk mínum en þar sem klukkan er að verða 2 núna og ég er ekki byrjuð að læra hefði ég víst alveg eins getað gefið honum frí og hrunið í það. Hrgmf

föstudagur, janúar 24, 2003
Smá áminning ef þið voruð búin að gleyma hvernig ég er:

What sexy girl are you
brought to you by Quizilla
Exotic... ok kannski ekki
Sarcastic... ætli ég verði ekki að viðurkenna það
Exquisitely sensual... yeah whatever, þetta er samt flott gella og ég vil vera eins og hún :-)

Úúúúú þetta var rosalegur dagur, ég heyrði alltaf fyrir mér Aragorn segja: 'Beygðu þig heimska beljan þín' ...góð blanda af Herði Mar og Quizilla ;-)
Eitt skrýtið: Ég er 5 kílóum þyngri í dag en í gær!!! Mælingar voru gerðar á sama tíma sólarhringsins á sömu vigt í sama herbergi í jafnnöktu og fastandi ástandi og af sama aðila. Sem sagt nokkuð vísindalega framkvæmdar mælingar en niðurstöðurnar vægast sagt umhugsunarverðar þar sem ég held að þó ég hefði borðað 7 McDonaldsmáltíðir í gær (sem ég gerði by the way ekki) eigi þetta ekki að vera hægt. Spennandi að sjá hvað mælingar segja á morgun en eins gott að hlutirnir verði orðnir eðlilegir aftur!!!
Eins og glöggt fólk mun átta sig á núna er ég bara heima og stefni á það að halda mig hér í kvöld. Evan mín fór nefnilega til manns í dag sem reif úr henni alla 4 endajaxlana og ég ætla að veita henni heiður félagsskapar míns. Og það er bannað að kalla hana hamstur því henni finnst það ekki fyndið. Og það er líka bannað að borða nammi fyrir framan hana því hún borðar bara Ab-mjólk og súpu. Getiði þrisvar hvað ég er að fara að gera núna múhahahaha.......

Já ég er víst líka hamingjusöm yfir því að vera með raddbönd í hæsta gæðaflokki :-) Læknislufsan uppgötvaði reyndar eitthvað ofnæmi í kinnholunum mínum en sterar í mánuð eiga víst að redda því. Ég finn hvernig röddin verður dýpri, hárin byrja að vaxa örar á bringunni og hvernig ég missi smám saman hæfileikann til að gera fleira en eitt í einu... Talandi um mig og Aragorn og kynskiptingar verð ég að senda ykkur hingað að skoða kynlífsráð Harðar, þau eru snilldarleg!
Ég drattaðist aftur snemma á fætur í morgun og fór í brjálaða brennslu og í þetta sitt var nafngiftin rétt. Ég hef ekki svitnað svona mikið síðan ég veit ekki hvenær. Jú reyndar veit ég hvenær en ég ætla ekki að segja ykkur það haha ;-) Svo kom ég heim og þá var skólabíllinn fyrir utan húsið mitt (að sækja litlu stelpurnar á efri hæðinni) og í honum voru nokkur af mínum börnum úr skólanum og þau þekktu mig! Ég var ekkert smá ánægð með þau að setja mig í 'rétt samhengi' og veifa fallega til mín svona snemma að morgni. Nú er ég farin í söngskólann að þenja fyrsta flokks raddböndin mín, góða helgi *

Já já já já JÁ !!! Ég vissi að okkur var ætlað að vera saman! Anna og Aragorn, hversu fullkomið hljómar það saman? I'm the happiest woman alive...

Who is your Ideal Lord of the Rings (male) Mate?
brought to you by Quizilla

Who is your Ideal Lord of the Rings (male) Mate?
brought to you by Quizilla
fimmtudagur, janúar 23, 2003
Í dag fer ég til læknis sem ætlar að fara með myndavél oní hálsinn á mér og skoða raddböndin. Ef þau eru frískleg og fín fæ ég vottorð upp á það sem ég get sent til Þýskalands í von um að einhver þar vilji eiga mig næstu árin. Ef ekki leggst ég undir sæng og verð þar næstu árin. Vinsamlegast sendið mér góð-og-gild-raddbönd-strauma klukkan 15.20 í dag. Kærar þakkir.
miðvikudagur, janúar 22, 2003
Ég verð að setja hér inn frétt úr Mogganum í dag af því að mér finnst hún svakaleg:
Dauðasök að baða sig utandyra
Íslömsk samtök í Kasmír á Indlandi hafa hótað að drepa allar múslímskar konur sem ekki hætta að vinna fyrir hið opinbera. Kemur hótunin fram á veggspjöldum sem hengd hafa verið upp í borginni Rajauri. Samtökin skipa einnig öllum múslímskum fjölskyldum að gifta strax burt stúlkur eldri en 15 ára og banna konum að baða sig í ám og vötnum. Þá er þeim bannað að fara einar út úr húsi. Í Kasmír er lítið um eiginleg baðherbergi á heimilum fólks og því er það siður að baða sig í næsta fljóti eða vatni. Á veggspjöldum íslamistanna segir hins vegar að ef konur verði staðnar að því að baða sig utandyra verði þær drepnar. Önnur samtök hafa í hótunum við konur ef þær taki ekki upp kuflanotkun og þriðju samtökin hafa hafið baráttu gegn því að ungar stúlkur og konur fái að njóta menntunar.

Ég horfði á mjög merkilega og skemmtilega danska heimildarmynd í gærkvöldi um það hvort líkamsrækt væri ný tegund trúarbragða. Mjög áhugavert þar sem fólk notar ræktina til að fá tíma til að kúpla út úr stressinu og rækta sjálft sig, flestir bæði líkamlega og andlega. Og svo var líka sýnt frá einhverjum dönskum ofur-spinningtíma og ég hef aldrei séð fólk svitna svona mikið. Oj bara. En ef þetta eru nýju trúarbrögðin er óhætt að segja að ég hafi mætt snemma til messu í morgun. 06.30 var ég mætt fyrir utan baðhúsið (og trúði því varla sjálf). Fór í tíma sem kallast 'brjáluð brennsla' en ég veit ekki hvort mér finnst það réttmætur titill. Kennarinn var ekki alveg að fatta að til þess að fá fólk til að hoppa edrú um miðja nótt þarf tónlistin að vera grípandi og skemmtileg, ekki eitthvað Ibiza-2001 remix. Það eina sem var fyndið var að þegar við vorum allar komnar á fjóra fætur að gera dónalegar rassaæfingar hljómaði 'Who let the dogs out' :-) Eftir þetta og smá lóðatilfærslur brunaði ég heim í morgunmat og sturtu. Svo var það lærdómur (hrgmf) en nú er langþráð pása sem stefnir í að verða heldur lengri en áætlað var. Ég er skiljanlega alveg miður mín yfir því.
Ég var að taka próf sem Sigurður sendi mér á netinu um sjálfan sig og ég svaraði 7 spurningum af 10 rétt! Ótrúlegt þar sem helmingur spurninganna var eitthvað um trommusettið hans, halló? En þetta er greinilega góður dagur fyrir mig til að giska á rétt svar. Spurning um að skella sér á einn 1x2 á eftir... við erum karlmenn við tippum!!!

mánudagur, janúar 20, 2003
Þessi mánudagur var góður mánudagur. Fór í Kringluna með krakkana í skólanum því þau voru bara 11 í dag vegna foreldraviðtala. Það gekk glimrandi vel, ótrúlegt en satt. Svo fórum við skvísurnar í Baðhúsið í nett sprikl en reyndar bara einfaldan tíma því við vorum ekki hörkutól. Eftir tímann vorum við komnar með yfirþyrmandi löngun í Serrano-pönnukökur, en það eru einmitt mexíkanskar pönnukökur með unaðslegum fyllingum sem kaupa má í Serrano í Kringlunni. Þegar við komumst þangað eftir sturtur og veskissækningar var búið að loka! Klukkan 20.30! Til háborinnar skammar, ég segi ekki meira. Við ákváðum þá að sætta okkur við kjúklingaborgara úr Suðurverskjúklingastaðnum en þegar við komum þangað var bara til einn kjúklingaborgari. Okkur var greinilega ekki ætlað að fá gott að borða í kvöld. Svo við keyptum síðasta stykkið af honum og einn ostborgara og fórum svo heim til Ólafar að troða í okkur. En það var bara nákvæmlega ekkert í sjónvarpinu fyrir okkur að horfa á! Sjaldan er ein báran stök og allt það. Grínlaust, ég hélt að mánudagskvöld væru sköpuð fyrir sjónvarpsgláp og undirteppakúr...
Jæja, síðasta einkunn haustannar komin í hús og er hún sú sama og hin einkunnin sem ég fékk, áttafimm. Sem er nú bara alveg hreint ágætt. Það var ekkert eðlilega erfitt að vakna í morgun og nú sit ég hér í stað þess að læra eða æfa mig eða gera eitthvað gáfulegt. En þar sem það er mánudagur fyrirgef ég sjálfri mér það alveg :-) Stefnan er jafnvel tekin á tvöfaldan tíma í baðhúsinu í kvöld, ef við Ólöf verðum hörkutól eða réttara sagt enn meiri hörkutól en venjulega!
Að lokum vil ég segja við alla sem eru að hugsa um að næla sér í About a Boy á næstu leigu: Ekki gera það!!!
Að lokum vil ég segja við alla sem eru að hugsa um að næla sér í About a Boy á næstu leigu: Ekki gera það!!!
laugardagur, janúar 18, 2003
Ég held ég hefði átt að halda mig við Jolly-colað í gærkvöldi og sleppa rauðvíninu, bjórnum, fullnægingunum og breezerunum. Vá hvað ég var drukkin! Fór til Pésa og entist þar alveg til að verða tvö, þá fórum við í bæinn og kíktum á Hverfis og Sólon. Meget sjovt. Hitti fólk sem ég hef ekki hitt lengi og sá fólk gera svolítið sem ég hef ekki séð lengi (án þess að ég nefni nein nöfn...loforð er loforð). Þegar staðirnir voru farnir að loka einn af öðrum ákváðum við að fara aftur í Vesturbæinn og fá okkur pizzu og vídeógláp. Aumingja pizzasendillinn vissi ekki hvert hann átti að fara þegar Pétur dró upp RISAsparibaukinn sinn og hófst handa við að telja upp úr honum 700 krónurnar sem vantaði upp á... Ég var ferlega hress þegar ég kom heim um 12-leytið í dag, skellti mér í sturtu alveg syngjandi kát og glöð. Fór svo á fyrstu sviðssetningaræfinguna fyrir óperettuna, thank god að ég þurfti ekki að syngja, og þá fór aðeins að halla undan fæti. Inn í höfuðið á mér mættu nefnilega timburmenn í röðum og fóru að dansa fjörugan dans. Eftir djúsí McDonaldsmáltíð þyngdust þeir aðeins og dönsuðu minna og nú eru þeir eiginlega alveg farnir. Ég er bara svolítið sybbin... Enda er það bara Hugh Grant gláp í kvöld og svo beinustu leið undir dúninn.
Talandi um dún þá keypti ég mér fínustu kápu áðan og hún er ekki bara fögur heldur kostaði hún og buxur sem ég keypti líka aðens 6000 kr samanlagt. Ekki svo slæmt ha? Nú heyri ég horaðan dökkhærðan mann með breskan hreim kalla á mig: 'Annie dear, if you don't get in front of your television this instant I shall buy myself another prostitute' svo það er eins gott að hlamma sér á sófann.

föstudagur, janúar 17, 2003
Eitt svona í tilefni helgarinnar:
You Are A Nipple Piercing
You're crazy and uninhibited, even with people you just met.
You're likely to be bisexual - and take both sexes at the same time.
You've got the boobs / pecs of a supermodel -
And all your shirts are a size too small!
What Piercing Are *You*?
More Great Quizzes from Quiz Diva
Og svo allir í kór: hmmmmmmmmmm
Hæ hó jippí jei og jippí jei það er kominn föstudagur!!! (og nú verða allir með þetta á heilanum um helgina híhíhí). Og stefnan er tekin á drykkjuskap og læti, húrra fyrir því! Er að fara til Pésa litla þar sem stútað verður nokkrum öl og svo ætla ég að hitta hana Ólöfu þegar hún er búin í eðlisfræðinördavísindaferðinni sinni :-) Og til upphitunar fyrir smá fíling er það netvafur, U2 og Jolly Cola í dós. Ég er enginn smá rokkari. Svo er það óperettuæfing á morgun og eins gott að Sævar verði ekki veðurtepptur á einhverri heiði því hann verður að taka hluta gagnrýninnar, ég tala nú ekki um ef Goggur litli verður soldið þunnur...þá þarf ekki mikið til að koma manni á bömmer. En nóg um það, nú er víst best að haska sér í sómasamleg föt (sem eru ekki útslefuð og snýtt... my job is so glamorous) og koma sér í rétta gírinn! Góða helgi *
miðvikudagur, janúar 15, 2003
Í tilefni þess að ég er komin óvenju snemma heim úr vinnunni ákvað ég að setja eina netferðina enn á símareikninginn hennar mömmu. Það er nefnilega svo vænn ungur maður að vinna með mér sem er duglegur að bjóða mér far heim. Í þakklætisskyni bulla ég svo alla leiðina heim svo við erum bæði glöð þegar við kveðjumst. Ágætt að hvíla lúin bein í smá stund áður en ég rölti í gymmið þar sem brennsla og mrl eru á dagskrá. Endu eru mrl-in mín (Magi Rass Læri) búin að hafa það allt of gott upp á síðkastið ;-) Ég sótti hjálpargögn fyrir þýskuprófið sem ég þarf að fara í áðan og vá hvað þetta er erfitt próf! Maður þarf sko að taka svona próf ef maður ætlar að sækja um í þýskan háskóla, svona til að sanna að maður skilji þýsku, en þó svo að ég tali, skilji, lesi, skrifi og hugsi bara ansi mikið vel á þýsku verð ég að endurtaka: Vá. Ekkert smá erfitt próf! Enda er það 5 tímar að lengd og kostar 8000 krónur (plús hjálpargögn til undirbúnings fyrir aumingja eins og mig 2000 kr). Kannski ég ætti að skipta um vinnu og gerast listræn fyrirsæta eins og ég sá auglýst um daginn. Þar er ágætis pening að fá fyrir það eitt að standa nakinn í einhverja klukkutíma. Og þó, þá mætti ég ekkert tala... Og ég þyrfti að vera allsber fyrir framan fullt af fólki... Og standa kyrr... Þetta var kannski ekki svo góð hugmynd. Nema kannski ef ég fer í eittþúsundsjöhundruðáttatíuogfjóra mrl-tíma í röð og tek sjálfa mig í atferlismótun til að læra að standa kyrr og þegja lengi lengi... Umhugsunarvert.
þriðjudagur, janúar 14, 2003
Ég hef ekkert að segja í dag nema að þetta er alveg stressdagur! Nú má heldur ekki lengur tala illa um Guðbjörgu því hún er komin á netið :-) En ef þú ætlar að fylgjast með mér hér Guðbjörg mín verðurðu að skrifa í gestabókina... Þannig eru reglurnar. Nú ætla ég að halda áfram minni action-packed dagskrá svo ég óska bara öllum nær og fjær friðar og farsældar í kvöld og á morgun ;-)
sunnudagur, janúar 12, 2003
Það voru bara allir góðir við mig í söng í gær! Ætli þetta sé einhver sálfræðihernaður, fyrst að byggja mig upp og svo BANG! skjóta mig niður aftur? Smá paranoja í gangi ;-) Matarboðið heppnaðist svona líka rosalega vel og ég held að allir hafi farið saddir og glaðir heim. Sem sagt: Tilganginum náð. Svo svaf ég barasta til 3 í dag! Það hefur sko ekki gerst síðan ég veit ekki hvenær. Mamma var líka komin með þvílíkar áhyggjur af mér, hélt bara að ég lægi fyrir dauðanum inni í rúmi svo hún hljóp inn til mín kl.3 og kallaði 'Anna mín! Er ekki allt í lagi með þig?' Alltaf gaman að rjúka upp með andfælum :-) Rólegheitadagur framundan í dag, reyna að hlaða batteríin áður en næsta brjálaða vika hefst. Takmark vikunnar er að bæta ekki í marblettasafnið.
Best að nota tækifærið og óska afmælisbörnum helgarinnar til hamingju með daginn: Sigurður varð þrítugur í gær og fagnaði með elítunni og Hjördís er 23 ára í dag og ég býst við að hún fagni með Hödda, Hildi og hundunum. Happy birthdays :-)

föstudagur, janúar 10, 2003
|
|
|
Já, þú ert eins sexý og þú heldur! Þú ert fooooooooli!!! Næstum búinn að sprengja skalann! Fyrir þér er svefnherbergið skeiðvöllur og gestir Kringlunnar af hinu kyninu fórnarlömb! |
Þá vitiði það :-) Nú er mér sko alveg sama þó ég sé léleg í íslensku!!!
Oh dear. Looks like I am a foreigner because I did not do well at this veird Icelandic exam. Oh well, ýkt óheppin þið; verðið bara að fyrirgefa mér takmarkaðan orðaforðann.
Ég er alveg pirruð í augnablikinu. Ástæða þessa pirrings er, eins og svo oft áður, þýska ættarbölvunin. (Fyrir þá örfáu sem ekki vita hvað það er kemur hér stutt útskýring: Þýska ættarbölvunin=veglega nefið mitt og samvöxnu augabrúnirnar). Í dag er það síðari liður bölvuninnar sem hvílir þungt á mér. Án gríns, ef ég færi í Survivor (þar sem eru engir plokkarar) yrði ég send heim eftir max 3 daga af því að ég myndi hræða líftórunni úr mönnum og dýrum á þeim stað sem ég yrði strandaglópur á, að ekki sé minnst á sjónvarpsáhorfendurna. Þ.a.l. myndi ég valda CBS-network stórtapi. Pirr Pirr Plokk og meira Pirr :-/
Ég var hins vegar ekkert bitin í dag og það eru góðar fréttir. Og ég tók tvöfaldan kaffitíma til að hefna mín á samstarfsfélögum mínum sem eru alltaf að gleyma mér. Ha! Fór í Baðhúsið í dag í fyrsta skipti í langan tíma og komst að því að úthaldið er furðu gott en ég er stirð eins og gamall trjádrumbur...verð samt vonandi ekki lengi að bæta úr því. Svo er það taka tvö í fyrramálið áður en ég fer á fyrstu óperettuæfinguna. Ætli það verði eins og í fyrra að ég verði sú eina sem hef lært mitt utanað? Spennan magnast smám saman og mun ná hámarki rétt fyrir hádegi á morgun.
Góða helgi dýrin mín,
Goggur Loðmundur

Viltu tékka á íslenskukunnáttunni þinni eða læturðu sæmræmt vottorð duga???
fimmtudagur, janúar 09, 2003
Í gær var góður dagur. Fyrst fékk ég fallegt ímeil og svo fór ég í söng og þar söng ég m.a. ótrúlega skemmtilegan og gleðivekjandi dúett með Sævari og svo gaf hann mér jólagjöf sem var svartur flístrefill. Snilllllld.
Í dag var ekki svo góður dagur því það gleymdist aftur að leysa mig af svo ég kæmist í kaffi og svo var ég bitin og þurfti að fara á Slysó. Ég er nú samt ekkert limlest, bara spurning um sýkingarhættu og þess háttar. Reyndar klemmdist einhver vöðvi í framhandleggnum líka við þessi ósköp svo ég þarf að fara varlega með hann næstu daga. Ekkert blak á ströndinni fyrir mig ;-) Hvað er það samt með fólk að bíta mig þessa dagana, ég er öll marin og blá! Nokkuð ljóst að ég verð ekki í ermalausu á laugardaginn þegar ég held kæruleysis-matarboð fyrir Kvennóskvísurnar.
Ég fór á svaðalega rokktónleika í gær þar sem sjá mátti meðal annarra heldri manna Andreu rokk, gaurinn úr Maus og einn meðlim Metallica. Ekki slæmt kompaní og ekki slæm tónlist heldur. Við systur vorum nú samt bæði þreyttar og myglaðar svo við fórum bara snemma heim að sofa eins og vel uppöldum stúlkum sæmir svona á miðvikudagskvöldi. Held að kvöldið í kvöld fari mest í að eiga bágt og horfa á sjónvarpið, jei!!!

miðvikudagur, janúar 08, 2003
Hér sit ég og les yfir veggspjaldið okkar í aðferðafræði í milljónasta og vonandi síðasta sinn. Án gríns, ef ég þarf að lesa frasann 'viðhorf fólks til sölu bjórs og léttvíns í matvöruverslunum' einu sinni enn ber ég ekki ábyrgð á því sem gerist. Það virðist þó verða það eina sem ég geri í Háskóla Íslands þessa önn svo ég ætti kannski ekki að vera að kvarta. Ég hef nefnilega tekið þá stóru ákvörðun að helga mig sönglistinni þetta misserið og setja sálfræðinámið upp á þá rykugu hillu sem það á skilið í smá tíma (vonandi langan tíma en ég er að reyna að vera raunsæ...)
Ég fór í heimsókn til kjarnafjölskyldunnar í Grafarvogi í gær og var það vægast sagt mjög skemmtilegt, nema þegar litli prinsinn tók sig til og beit mig í handlegginn. Lítil börn eru með beittar tennur. Skötuhjúin lumuðu á mjög svo uppfræðandi bækling handa mér að skoða og án þess að ég ætli að tjá mig mikið nánar um það mál verð ég að segja: Allt er nú til !!!
Að lokum vil ég gefa Herði Mar knús dagsins þar sem hann sendi mér ímeil sem mun valda því að ég brosi blítt í allan dag :-)

mánudagur, janúar 06, 2003
Vá heil vinnuvika framundan! Hvernig ætli það muni ganga? Get ekki sagt að ég hlakki til en hins vegar byrjar söngskólinn líka í dag og það er nú alltaf stórskemmtilegt að fara í hann :-) Ég var ýkt dugleg um helgina, umturnaði herberginu mínu svo nú er það enn fegurra en áður, believe it or not. Og svo fékk ég þætti 4-9 af nýju Friends-seríunni! Það þykir mér ekki leiðinlegt. Svo ef einhver þarf að finna mig næstu daga og ég er ekki í vinnunni eða í skólanum þá er nokkuð ljóst að ég sit fyrir framan tölvuna og hlæ dátt.
Nöldurhornið
Ég verð að fá að nöldra smá í dag. Ég datt nefnilega inn í að glápa á Opruh á laugardaginn. Það væri nú ekki saga til næsta bæjar nema fyrir það að hún er nú alltaf að tala um fátæka og ólæsa og feita og fatlaða og allt fólkið sem á eitthvað bágt og voða mikið að hjálpa þeim alltaf sem er náttúrulega mjög gott... En í þessum þætti var hún að sýna fólki hvað hún myndi gefa vinum sínum í jólagjöf; fullt af stórum dýrum hlutum og voða flott allt saman. Nema hvað að hver einasta gargandi kelling í áhorfendasalnum fékk hvern einasta hlut sem Oprah talaði um! Þetta voru gjafir fyrir einhverjar milljónir! Og hvað með fátæka, ólæsa, feita fólkið??? Ég bara spyr. En hér kemur hluti af því sem hver kona fékk: Hljómflutningstæki, farsími með innbyggðri myndavél og 3 mánaða gsmáskrift, digital myndavél, snyrtivörur, kökur, náttföt, nammi, popp, hitasokkar, j-lo jogginggallar, brauð, kex, geisladiskar, myndarammar, kökur, talandi myndaalbúm, bækur, lesgleraugu og tímarit. Mjög gaman fyrir kellingarnar í þættinum að fá þetta allt en ætli það séu ekki einhverjir aðrir til sem hefðu eitthvað betra við peningana að gera ungfrú Winfrey???

fimmtudagur, janúar 02, 2003
Ég gleymdi að segja frá skrýtna verslunarleiðangrinum sem ég fór í í dag. Það var nefnilega að byrja útsala í Hagkaup og ég var dregin þangað af mömmuhóp sem vantar alltaf barnaföt á viðráðanlegu verði. Ég var að sjálfsögðu til í það og þetta kom ég með heim:
Blómavasa (handa mömmu)
Gullnærföt (smá Princess Leia fílingur)
Varalitur og maskari (maður getur víst alltaf á sig blómum bætt)
Hrökkbrauð (svo ég geti sýnt nýju gullnærfötin með stolti)
Kotasæla (í sama tilgangi og hrökkbrauðið)
Hindber (veit ekki af hverju ég keypti þau)
Sem sagt skrýtin og skemmtileg innkaup :-)

Your New Year's Resolution Should Be: Marry For Money!
Most your relationships end in a flash
So you might as well be in it for cash
What's *Your* New Year's Resolution?
More Great Quizzes from Quiz Diva
Ég var nú reyndar búin að gera annað árámótaheit en hei! þetta er örugglega ágætt líka...
Halló og gleðilegt nýtt ár!!!
Ég átti frekar dapurt gamlárskvöld... Ég var ekki mjög hrifin af skaupinu og Eva er ekki mjög hrifin af flugeldum svo við höfðum bara hægt um okkur fyrir miðnættið. Svo var byrjað að skála og svo var skálað aðeins meira eins og gengur en ég endaði í frekar rólegu partý í Þingholtunum og fór bara heim eitthvað um kl.5. Þá reif ég mig úr sparigallanum og fékk mér smá göngutúr um hverfið til að fara yfir gamla árið og hugsa um árið framundan (já eða bara láta renna af mér áður en ég lagðist í rúmið hahaha). Sá það samt fljótt að það var ekkert mjög sniðugt að vera kvenkyns, ung og ekki alveg edrú á gangi svona snemma morguns þar sem margir misjafnlega vel gangfærir menn voru á heimleið svo ég tölti bara aftur heim.
Klámmyndaleikarinn Brian vann Survivor!!! Hneyksli. Reyndar skárra en að fíflið hann Clay hefði unnið en ég er samt ekki sátt :-(