Ég verð að setja hér inn frétt úr Mogganum í dag af því að mér finnst hún svakaleg:
Dauðasök að baða sig utandyra
Íslömsk samtök í Kasmír á Indlandi hafa hótað að drepa allar múslímskar konur sem ekki hætta að vinna fyrir hið opinbera. Kemur hótunin fram á veggspjöldum sem hengd hafa verið upp í borginni Rajauri. Samtökin skipa einnig öllum múslímskum fjölskyldum að gifta strax burt stúlkur eldri en 15 ára og banna konum að baða sig í ám og vötnum. Þá er þeim bannað að fara einar út úr húsi. Í Kasmír er lítið um eiginleg baðherbergi á heimilum fólks og því er það siður að baða sig í næsta fljóti eða vatni. Á veggspjöldum íslamistanna segir hins vegar að ef konur verði staðnar að því að baða sig utandyra verði þær drepnar. Önnur samtök hafa í hótunum við konur ef þær taki ekki upp kuflanotkun og þriðju samtökin hafa hafið baráttu gegn því að ungar stúlkur og konur fái að njóta menntunar.

<< Home