miðvikudagur, janúar 22, 2003

Ég horfði á mjög merkilega og skemmtilega danska heimildarmynd í gærkvöldi um það hvort líkamsrækt væri ný tegund trúarbragða. Mjög áhugavert þar sem fólk notar ræktina til að fá tíma til að kúpla út úr stressinu og rækta sjálft sig, flestir bæði líkamlega og andlega. Og svo var líka sýnt frá einhverjum dönskum ofur-spinningtíma og ég hef aldrei séð fólk svitna svona mikið. Oj bara. En ef þetta eru nýju trúarbrögðin er óhætt að segja að ég hafi mætt snemma til messu í morgun. 06.30 var ég mætt fyrir utan baðhúsið (og trúði því varla sjálf). Fór í tíma sem kallast 'brjáluð brennsla' en ég veit ekki hvort mér finnst það réttmætur titill. Kennarinn var ekki alveg að fatta að til þess að fá fólk til að hoppa edrú um miðja nótt þarf tónlistin að vera grípandi og skemmtileg, ekki eitthvað Ibiza-2001 remix. Það eina sem var fyndið var að þegar við vorum allar komnar á fjóra fætur að gera dónalegar rassaæfingar hljómaði 'Who let the dogs out' :-) Eftir þetta og smá lóðatilfærslur brunaði ég heim í morgunmat og sturtu. Svo var það lærdómur (hrgmf) en nú er langþráð pása sem stefnir í að verða heldur lengri en áætlað var. Ég er skiljanlega alveg miður mín yfir því.
Ég var að taka próf sem Sigurður sendi mér á netinu um sjálfan sig og ég svaraði 7 spurningum af 10 rétt! Ótrúlegt þar sem helmingur spurninganna var eitthvað um trommusettið hans, halló? En þetta er greinilega góður dagur fyrir mig til að giska á rétt svar. Spurning um að skella sér á einn 1x2 á eftir... við erum karlmenn við tippum!!!