Jæja, síðasta einkunn haustannar komin í hús og er hún sú sama og hin einkunnin sem ég fékk, áttafimm. Sem er nú bara alveg hreint ágætt. Það var ekkert eðlilega erfitt að vakna í morgun og nú sit ég hér í stað þess að læra eða æfa mig eða gera eitthvað gáfulegt. En þar sem það er mánudagur fyrirgef ég sjálfri mér það alveg :-) Stefnan er jafnvel tekin á tvöfaldan tíma í baðhúsinu í kvöld, ef við Ólöf verðum hörkutól eða réttara sagt enn meiri hörkutól en venjulega!
Að lokum vil ég segja við alla sem eru að hugsa um að næla sér í About a Boy á næstu leigu: Ekki gera það!!!
Að lokum vil ég segja við alla sem eru að hugsa um að næla sér í About a Boy á næstu leigu: Ekki gera það!!!

<< Home