Oh dear. Looks like I am a foreigner because I did not do well at this veird Icelandic exam. Oh well, ýkt óheppin þið; verðið bara að fyrirgefa mér takmarkaðan orðaforðann.
Ég er alveg pirruð í augnablikinu. Ástæða þessa pirrings er, eins og svo oft áður, þýska ættarbölvunin. (Fyrir þá örfáu sem ekki vita hvað það er kemur hér stutt útskýring: Þýska ættarbölvunin=veglega nefið mitt og samvöxnu augabrúnirnar). Í dag er það síðari liður bölvuninnar sem hvílir þungt á mér. Án gríns, ef ég færi í Survivor (þar sem eru engir plokkarar) yrði ég send heim eftir max 3 daga af því að ég myndi hræða líftórunni úr mönnum og dýrum á þeim stað sem ég yrði strandaglópur á, að ekki sé minnst á sjónvarpsáhorfendurna. Þ.a.l. myndi ég valda CBS-network stórtapi. Pirr Pirr Plokk og meira Pirr :-/
Ég var hins vegar ekkert bitin í dag og það eru góðar fréttir. Og ég tók tvöfaldan kaffitíma til að hefna mín á samstarfsfélögum mínum sem eru alltaf að gleyma mér. Ha! Fór í Baðhúsið í dag í fyrsta skipti í langan tíma og komst að því að úthaldið er furðu gott en ég er stirð eins og gamall trjádrumbur...verð samt vonandi ekki lengi að bæta úr því. Svo er það taka tvö í fyrramálið áður en ég fer á fyrstu óperettuæfinguna. Ætli það verði eins og í fyrra að ég verði sú eina sem hef lært mitt utanað? Spennan magnast smám saman og mun ná hámarki rétt fyrir hádegi á morgun.
Góða helgi dýrin mín,
Goggur Loðmundur

<< Home