Í gær var góður dagur. Fyrst fékk ég fallegt ímeil og svo fór ég í söng og þar söng ég m.a. ótrúlega skemmtilegan og gleðivekjandi dúett með Sævari og svo gaf hann mér jólagjöf sem var svartur flístrefill. Snilllllld.
Í dag var ekki svo góður dagur því það gleymdist aftur að leysa mig af svo ég kæmist í kaffi og svo var ég bitin og þurfti að fara á Slysó. Ég er nú samt ekkert limlest, bara spurning um sýkingarhættu og þess háttar. Reyndar klemmdist einhver vöðvi í framhandleggnum líka við þessi ósköp svo ég þarf að fara varlega með hann næstu daga. Ekkert blak á ströndinni fyrir mig ;-) Hvað er það samt með fólk að bíta mig þessa dagana, ég er öll marin og blá! Nokkuð ljóst að ég verð ekki í ermalausu á laugardaginn þegar ég held kæruleysis-matarboð fyrir Kvennóskvísurnar.
Ég fór á svaðalega rokktónleika í gær þar sem sjá mátti meðal annarra heldri manna Andreu rokk, gaurinn úr Maus og einn meðlim Metallica. Ekki slæmt kompaní og ekki slæm tónlist heldur. Við systur vorum nú samt bæði þreyttar og myglaðar svo við fórum bara snemma heim að sofa eins og vel uppöldum stúlkum sæmir svona á miðvikudagskvöldi. Held að kvöldið í kvöld fari mest í að eiga bágt og horfa á sjónvarpið, jei!!!

<< Home