föstudagur, desember 27, 2002

Ég er ekkert mikið þunn í dag, bara smá... Fór ud på livet með Pésa litla í gærkvöldi og skemmti mér svona líka ágætlega alveg þar til ég hætti að skemmta mér ágætlega. Löng saga. Anyways, ég kíkti fyrst til ömmu hans þar sem ættingjarnir voru á útopnu...mjög gaman að hitta þau aftur. Eva greyið skemmti sér hins vegar ekkert mjög vel en hún á allt gott skilið fyrir að nenna að koma heim úr bænum til að sækja mig, keyra með mig út á Seltjarnarnes, sitja þar í undarlegu teiti og keyra svo okkur skötuhjónin í bæinn. Hún lengi lifi!!! Í staðinn er ég designated driver fyrir hana í kvöld :-) Ég hitti fyrrum bekkjarfélaga minn hann Gísla Þór á Glaumbar í gær. Það var mjög skondið, við tókum alveg hálftíma nostalgíuflipp og bárum saman barnaskólaminningarnar okkar. Þær voru ekkert mjög líkar en við skemmtum okkur samt alveg furðulega vel. Svo er það LOTR dagur á morgun, fyrst er það #1 á vídeó og svo #2 í bíó um kvöldið. Veit ekki hvernig ég höndla alla þessa spennu, ég sem var alveg að fara yfir um á #1 í bíó á sínum tíma... spurning hversu djúp naglaförin verða á sessunaut mínum þetta árið ;-)