fimmtudagur, desember 19, 2002

Það sem ég ætla að gera í dag:
1. Fara til Guðrúnar og láta hana laga á mér hárið og ekki hugsa um Coldplaytónleikana í kvöld.
2. Senda jólakort og borga reikninga og ekki hugsa um Coldplaytónleikana í kvöld.
3. Fara í vinnuna og á meðan ég er þar ætla ég ekki að hugsa um Coldplaytónleikana í kvöld.
4. Guðbjörg sækir mig í vinnuna og keyrir okkur Margeir heim þar sem ég ætla að passa hann í smá stund en ekki hugsa um Coldplaytónleikana.
5. Veit ekki hvað ég geri eftir það en veit ég verð að gera eitthvað því annars mun ég sitja heima og hugsa um Coldplaytónleikana. Ef einhver býður sig fram til að dreifa huga mínum má sú hin sama/sá hinn sami gjarnan senda mér sms :-)
Og við þau sem geta ekki dreift huga mínum í kvöld af því að þau eru að fara á Coldplaytónleikana vil ég bara segja eitt: #"!!$%&_"@ >"#!?(%=& !!!