Tan-spray-klefa ævintýri Önnu (eða Allt sem fólk leggur á sig fyrir útlitið)
Ég kem inn og greini feimnislega frá erindi mínu á þennan stað. Indæl stúlka réttir mér bækling sem ég á vinsamlegast að lesa áður en ég geri nokkuð annað. Í bæklingnum eru falleg orð um virkni græjunnar, hvað hún gerir og hvernig o.þ.h. en svo koma leiðbeiningar sem hljómuðu einhvernveginn svona:
1. Setjið sturtuhettuna á ykkur rétt ofan við hárlínuna.
2. Komið ykkur fyrir í innri klefanum og snúið að glerhurðinni með axlabreidd á milli fóta.
3. Ýtið á svarta takkann og lokið augum og munni.
4. Lyftið fótum og höndum til skiptis.
5. Þegar úðuninni lýkur á að dreifa úr kreminu með höndunum.
6. Takið varlega af ykkur hettuna og skiljið hana eftir í klefanum.
7. Þerrið varlega með þurru handklæði til að vera viss um að þið séuð orðin þurr.
8. Þurrkið hendur, fætur, eyru o.fl. með blautum klút.
9. Þvoið hendur með sápuvatni áður en þið farið.
10. Ekki fara í sturtu næstu 5 klst.
Og svo kom allskonar um að þau beri ekki ábyrgð á skrýtnum lit, ónýtum fötum osfrv.
Eftir þennan lestur leist mér nú varla á blikuna en ákvað nú samt að láta slag standa. Ég fór inn í skringilegan silfurlitan klefa þar sem ég fór úr öllum fötum og tók af mér skartgripina og svoleiðis. Svo tók ég mér stöðu á miðju gólfi klefans, allsnakin og með sturtuhettu. Ég verð að viðurkenna að ég bjóst við 'You're on candid camera' fólki á hverri stundu...þetta var verulega furðulegt. En svo ýtti ég á takkann ógurlega og allt fór á milljón, brúnkudót sprautaðist úr öllum áttum og fyllti klefann af allskyns gufum og dóti. Ég fór samviskusamlega eftir leiðbeiningum bæklingsins og stúlkunnar, ók meira að segja nærfatalaus heim til að fá ekki för! Brúnkan átti að koma eftir ca 5 tíma og ég er ekki frá því að það sé gullin blær á fingrunum sem slá á ýklaborðið af miklum móð núna! Spennt að vakna á morgun og skoða afraksturinn, annað hvort brosi ég í spegilinn eða öskra og kemst ekki úr húsi næstu daga... Ég hef augljóslega meiri áhyggjur af sumum svæðum en öðrum, mér er til dæmis nokkuð sama þó ég sé röndótt á rassinum en kannski ekki í andlitinu eða á handleggjunum. Þetta var allavega upplifun, því verður ekki neitað (þó svo að deila megi um hversu eðlilegt þetta er allt saman)

<< Home