miðvikudagur, desember 11, 2002

Ég er alveg með hálsbólgu frá helvíti í dag, var alltaf að vakna í nótt út af því og get varla talað. Eins gott að ég þarf ekkert að syngja í dag. Það gekk bara vel að syngja fyrir kellurnar í gær þrátt fyrir hljómlítinn sal og smá mis hér og þar...það tók enginn eftir því :-) Í stað þess að setjast við bækurnar og fara að læra eftir sönginn fór ég fyrst smá ísrúnt með Sævari og svo í heimsókn til Pésa enda er hann miklu skemmtilegri en bækurnar og það er miklu miklu betra að knúsa hann! Þar fékk ég líka að sjá fyrsta þáttinn úr nýju Friends-seríunni svo ég veit hvað gerist liggaliggalá! Ég verð nú samt að segja að ég varð fyrir pínulitlum vonbrigðum en nóg um það.
Ég auglýsi eftir einhverjum sem veit eitthvað um brúnkukremsklefann sem var verið að auglýsa um daginn, hann vakti nefnilega forvitni mína.