mánudagur, desember 09, 2002

Ég var að fatta að ég hef bara miðvikudaginn, fimmtudaginn og föstudaginn til að læra. Og þá meina ég að sjálfsögðu bara fyrir klukkan 12 og eftir klukkan 20. Ég skil ekkert í þessari aðferðafræði, af hverju þarf að tákna fylgni með einhverjum vektorum og hornaföllum? Mér finnst það ekki meika sens og ég vil ekki læra að gera það því þegar ég verð orðin frægur vísindamaður nota ég bara litla heimska BA-nema til að dunda sér við að teikna gröf og horn fyrir mig. Kjarni málsins: I'm screwed.