þriðjudagur, desember 10, 2002

Eftir stórskemmtilegt höfuðhögg í gær er ég svolítið vönkuð í dag og ber því enga ábyrgð á því sem ég læt út úr mér. Ég var alveg að standa mig í kossaflensi í gær, ég hitti alveg 4 indælis manneskjur sem ég hafði ekki hitt lengi og öll áttu þau skilið koss fyrir að koma aftur :-) Gaurinn sem fann upp aðferðafræði á hins vegar ekki koss skilið af því að uppfinning hans veldur mér miklum áhyggjum og stressi þessa dagana. Gaurinn sem setti hræðilega mynd af mér á netið á heldur ekki koss skilið, mér er illa við að grettumyndir af mér séu settar á opinbera staði. Sérstaklega þar sem ég er búin að finna verðandi eiginmann minn á netinu. Þið getið séð hann hér. Ég held að það sé prýðilegur hjónasvipur með okkur, notum bæði gleraugu og brosum bæði breitt.