HRGMF
Þetta er ekki góður dagur. Ég svaf eiginlega ekkert í nótt vegna kvefvesens og röddin er alveg farin núna. Ég gat ekki einu sinni stunið upp: 'Ég kemst ekki í vinnuna í dag' þegar ég hringdi í Öskjó áðan. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað mér finnst erfitt að þurfa að þegja heilan dag, ég er alveg að springa núna þó klukkan sé ekki orðin ellefu. Ég reyni að fá útrás fyrir talþörf mína í gegnum netið og sms en það virðist enginn annar vera að springa úr málæði því ég fæ engin svör. Reyni að fókusa á það að bjarga söngröddinni svo ég eigi einhvern möguleika á að geta sungið á mánudaginn, en verð víst að viðurkenna að það lítur ekki vel út. Hins vegar fór ég í hljómfræðiprófið í gærkvöldi og fékk strax að vita einkunnina mína sem er 9 :-) Ekki slæmt. Verst að einkunnin úr aðferðafræðiprófinu á morgun verður líklega helmingi lægri þar sem mér hefur ekki gengið vel að læra hingað til og sé ekki fram á mikinn lærdóm í dag. Þó svo að ég trúi ekki að föstudagurinn 13. sé sérstaklega slæmur dagur er ljóst að þetta verður ekki besti dagur lífs míns.
Mér var sagt það í gærkvöldi að þessi síða væri mjög mikið 'ég' (???) og ég er ekki enn búin að ákveða hvort það sé gott eða slæmt. Þetta er að sjálfsögðu skrifað af mér um mig fyrir mig en er þetta 'ég'? Og er það hrós eða móðgun? Ætti ég kannski að reyna að vera aðeins minna 'ég'? Vill viðkomandi aðili vinsamlegast útskýra mál sitt betur, takk.

<< Home