fimmtudagur, desember 12, 2002

Vá hvað ég er kvefuð í dag, ennisholur, kinnholur, nef og háls allt undirlagt af skemmtilegheitum. Ég var reyndar mjög fegin því að vera með stíflað nef í dag því ég lenti í mjög óskemmtilegum aðstæðum þar sem var tvímælalaust kostur að geta ekki fundið lykt. Alltaf gaman í vinnunni minni :-) Hljómfræðiprófið er núna á eftir og ég er svo innilega ekkert stressuð að það er eiginlega óeðlilegt. Kannski er það nefúðinn sem hefur svæft stresssvæði heilans... Carlos salsakennari var að hringja í mig og segja mér að advanced-group æfingarnar hefjast eftir áramót. Það er líka eins gott því það er orðið ansi langt síðan mjaðmirnar fengu almennilegt workout hmmmm... Ég hef alveg ekkert að segja, ég veit ekki af hverju ég er að taka upp pláss á Veraldarvefnum fyrir þetta steingelda bull mitt. Og enn síður veit ég af hverju þið lesið þetta!