ARG!!! þessi dagur innihélt aðeins of mikla action fyrir minn kvefaða háls. Próf frá 9 til 13 og það gekk bara vonum framar! Svo hittumst við í stelpurnar til að klára skýrslu 3 í aðferðafræði sem á að skila á mánudag (ég lýsi enn einu sinni yfir vanþóknun minni á því að hafa þessa skýrslu svona seint á önninni). Eftir það fór ég á æfingu fyrir tónleikana og gat furðu mikið sungið. Elmar gaf mér töfradrykk frá ömmu sinni sem bragðast hryllilega en svínvirkar á hálsinn minn og á hann allt gott skilið fyrir að vera svo vænn. Ég kom heim eitthvað um 6 og gekk þá frá glósum og bókum og drasli sem safnast hafði upp í prinsessuherberginu. Enda allir ættingjarnir að streyma í bæinn svo það er eins gott að vera ekki með drasl ;-) Eftir það skellti ég mér í brjálæðið: Laugaveg og Smáralind. Það tók smá á taugarnar en ég keypti afmælisgjöf handa mömmu (sem er alveg flott, by the way) og tónleikabol handa mér, svona við nýju ótrúlega flottu buxurnar mínar. Eftir það lá leið mín í brúnkudótaríið og það var sko alveg ævintýri sem ég verð eiginlega bara að setja í sérfærslu. Klukkan var að ganga tíu þegar ég kom heim og þá gat ég ekki fundið neinn sem vildi fagna með mér próflokunum svo ég horfði bara á sjónvarpið, spjallaði við mömmu (nota tækifærið áður en hún verðu gömul og kölkuð) og undirbjó geðveiki mánudagsins. Nú er ég alveg að deyja úr þreytu en get ekki sofnað. Læknirinn varaði mig við að ofnæmislyfið gæti valdið svefnleysi svo við skulum vona að það sé ástæðan en ekki eitthvað dulin vanlíðan sem liggur falin djúpt í undirmeðvitundinni...
sunnudagur, desember 15, 2002
Previous Posts
- Búin með aðferðafræðiprófið!!!! Húrra fyrir því! H...
- Ég vil vinsamlegast biðja þá sem ekki hafa ritað n...
- Jæja, þá er það næstsíðasta pása dagsins, kvöldmat...
- Hér getið þið lesið um lyftingaóðan reiðan ungan m...
- HRGMF Þetta er ekki góður dagur. Ég svaf eiginlega...
- Vá hvað ég er kvefuð í dag, ennisholur, kinnholur,...
- Ég var að fá bréf frá skattinum og þeir dæmdu mér ...
- Ég er alveg með hálsbólgu frá helvíti í dag, var a...
- Eftir stórskemmtilegt höfuðhögg í gær er ég svolít...
- Ég var að fatta að ég hef bara miðvikudaginn, fimm...

<< Home