föstudagur, desember 13, 2002

Jæja, þá er það næstsíðasta pása dagsins, kvöldmatarpásan. Þar sem ég nýt ekki beint matarins í dag get ég alveg eins eytt pásunni hér. Hér get ég allavega 'talað'. Lokapásan verður tekin kl.22 til að kíkja hvort mar þekkir ekki einhvern í Djúpu ;-) Í síðastu lærdómspásu skellti ég mér á læknavaktina þar sem ástand mitt er vægast sagt ekki gott. Þar var indæll læknir sem vildi allt fyrir mig gera þegar ég sagði honum þyrfti að geta sungið og gaf mér bæði sterasprey í nefið og ofnæmislyf. Svo las ég eftirá að hvort tveggja þurrkar munninn...það er nú ekki gott fyrir sönginn en kannski skárra en þegjandi hæsi og kinnholubólgur. Kíkti í leiðinni í Elko með mömmu af því að eldavélin okkar er illa biluð og komst að því að það er dýrt að geta eldað mat með aðstoð raftækja. Skoðaði mp3 spilara líka en það er eitthvað sem ég stefni á að fjárfesta í. Það er víst það besta sem maður fær til að taka upp söngtíma og æfingar og svoleiðis. Sem sagt svona atvinnutæki framtíðarinnar. Verðið var líka í stíl við það, aðeins of hátt til að hægt sé að biðja Sveinka um það í jólagjöf :-)
Eins og glöggir einstaklingar hafa væntanlega áttað sig á á ég alveg ofboðslega bágt núna og vorkenni mér mjög mjög mikið. Ég réttlæti það hins vegar með því að það geri það enginn annar og því eigi ég engra kosta völ... Nú er ég farin að reikna! Það hefur gengið furðu vel í dag og er eiginlega bara svolítið gaman núna (ég hefði kannski átt að byrja fyrr í vetur og njóta þessarar ánægju lengur...)