fimmtudagur, desember 19, 2002

Ég hugsaði eiginlega ekkert um tónleikana í dag :-) Guðrún gerði hárið mitt geisifínt svo ég get sveiflað því af fullum krafti núna. Bilað að gera í vinnunni, ætli jólastress foreldranna sé að smita krakkana? Svo sóttu Guðbjörg og Margeir mig og ég lék við hann í smá stund á meðan hún fékk sér fínan haus eins og minn. Á meðan við vorum að leika kom skeggjaður maður í heimsókn með fullan poka af gjöfum. Gaman þegar jólasveinninn kemur snemma og hvað þá þegar gjafirnar eru bæði óvæntar og frábærar ;-) Eftir skyndibitamat með sveinka fór ég aftur í vinnuna því þar var jóladiskótek fyrir eldri krakkana. Það var voða gaman, dansað og farið í leiki og alls konar skemmtilegheit en nú er ég komin heim og sit og horfi á My Fair Lady sem ég fékk einmitt í dag. Það eru valin atriði á dagskrá og ég segi það aftur sem ég hef sagt áður: Þetta er snilldarmynd!!! Vonandi sef ég lengi, vært og rótt í nótt því ég er orðin ansi langþreytt og tuskuleg. Góða nótt *