miðvikudagur, janúar 08, 2003

Hér sit ég og les yfir veggspjaldið okkar í aðferðafræði í milljónasta og vonandi síðasta sinn. Án gríns, ef ég þarf að lesa frasann 'viðhorf fólks til sölu bjórs og léttvíns í matvöruverslunum' einu sinni enn ber ég ekki ábyrgð á því sem gerist. Það virðist þó verða það eina sem ég geri í Háskóla Íslands þessa önn svo ég ætti kannski ekki að vera að kvarta. Ég hef nefnilega tekið þá stóru ákvörðun að helga mig sönglistinni þetta misserið og setja sálfræðinámið upp á þá rykugu hillu sem það á skilið í smá tíma (vonandi langan tíma en ég er að reyna að vera raunsæ...)
Ég fór í heimsókn til kjarnafjölskyldunnar í Grafarvogi í gær og var það vægast sagt mjög skemmtilegt, nema þegar litli prinsinn tók sig til og beit mig í handlegginn. Lítil börn eru með beittar tennur. Skötuhjúin lumuðu á mjög svo uppfræðandi bækling handa mér að skoða og án þess að ég ætli að tjá mig mikið nánar um það mál verð ég að segja: Allt er nú til !!!
Að lokum vil ég gefa Herði Mar knús dagsins þar sem hann sendi mér ímeil sem mun valda því að ég brosi blítt í allan dag :-)