sunnudagur, janúar 12, 2003

Það voru bara allir góðir við mig í söng í gær! Ætli þetta sé einhver sálfræðihernaður, fyrst að byggja mig upp og svo BANG! skjóta mig niður aftur? Smá paranoja í gangi ;-) Matarboðið heppnaðist svona líka rosalega vel og ég held að allir hafi farið saddir og glaðir heim. Sem sagt: Tilganginum náð. Svo svaf ég barasta til 3 í dag! Það hefur sko ekki gerst síðan ég veit ekki hvenær. Mamma var líka komin með þvílíkar áhyggjur af mér, hélt bara að ég lægi fyrir dauðanum inni í rúmi svo hún hljóp inn til mín kl.3 og kallaði 'Anna mín! Er ekki allt í lagi með þig?' Alltaf gaman að rjúka upp með andfælum :-) Rólegheitadagur framundan í dag, reyna að hlaða batteríin áður en næsta brjálaða vika hefst. Takmark vikunnar er að bæta ekki í marblettasafnið.
Best að nota tækifærið og óska afmælisbörnum helgarinnar til hamingju með daginn: Sigurður varð þrítugur í gær og fagnaði með elítunni og Hjördís er 23 ára í dag og ég býst við að hún fagni með Hödda, Hildi og hundunum. Happy birthdays :-)