mánudagur, janúar 20, 2003

Þessi mánudagur var góður mánudagur. Fór í Kringluna með krakkana í skólanum því þau voru bara 11 í dag vegna foreldraviðtala. Það gekk glimrandi vel, ótrúlegt en satt. Svo fórum við skvísurnar í Baðhúsið í nett sprikl en reyndar bara einfaldan tíma því við vorum ekki hörkutól. Eftir tímann vorum við komnar með yfirþyrmandi löngun í Serrano-pönnukökur, en það eru einmitt mexíkanskar pönnukökur með unaðslegum fyllingum sem kaupa má í Serrano í Kringlunni. Þegar við komumst þangað eftir sturtur og veskissækningar var búið að loka! Klukkan 20.30! Til háborinnar skammar, ég segi ekki meira. Við ákváðum þá að sætta okkur við kjúklingaborgara úr Suðurverskjúklingastaðnum en þegar við komum þangað var bara til einn kjúklingaborgari. Okkur var greinilega ekki ætlað að fá gott að borða í kvöld. Svo við keyptum síðasta stykkið af honum og einn ostborgara og fórum svo heim til Ólafar að troða í okkur. En það var bara nákvæmlega ekkert í sjónvarpinu fyrir okkur að horfa á! Sjaldan er ein báran stök og allt það. Grínlaust, ég hélt að mánudagskvöld væru sköpuð fyrir sjónvarpsgláp og undirteppakúr...