mánudagur, janúar 27, 2003

Ég ætlaði í brjálaða brennslu í morgun en þegar vekjarinn hringdi 6.20 gat ég ómögulega farið á fætur, ekki séns! Svo hér er ég hálfklædd að reyna að koma mér í að gera eitthvað, hvað sem er af viti. Held ég leggist inn í sófa og hlusti á klassíska tónlist undir því yfirskyni að ég sé að læra fyrir hlustunarprófið sem er klukkan 5 í dag.