sunnudagur, janúar 26, 2003

Aumingja ég í dag! Ég er með klikkaðar harðsperrur í bakinu og þær eru ekki tilkomnar útaf einhverju skemmtilegu heldur bara extra miklu workouti í gær (5 kílóin muniði...). Svo er það ritgerðin ógurlega og undirbúningur fyrir hlustunarpróf í dag. I love my life.
Talandi um gymmið... Hvað er málið með gellur sem raka sig í Baðhússturtunni? Oj barasta! Án gríns, það eru sumir hlutir sem maður einfaldlega gerir ekki utan fjögurra veggja heimilisins. Langar mig að standa í ökkladjúpu vatni fullu af klofhárum annarra? NEI! Það var ein sköfuóð í sturtunni við hliðina á mér í gær og ég leit á hana og sagði: Ertu ekki að grínast? Hún leit sakleysislega á mig til baka og svaraði: Já en ég er bara að raka mig undir höndunum. Halló! Mér er nákvæmlega sama hvaða hár þú ert að fjarlægja af skrokknum á þér, mig langar ekki að komast í snertingu við þau, aldrei! Ógeðslegar kellingar.
Ég fór á óperettuæfingu í gær og var þar í klukkutíma. Á þeim tíma gekk ég þrisvar þvert yfir salinn án þess að segja orð. Það var mitt hlutverk í gær. Þetta er það sem mig langar til að eyða starfsævinni minni í. Ég er skrýtin. Kíkti til Ólafar í gær þar sem vinkonur hennar og einn kærasti sátu og sötruðu ljúffenga bollu. Svo keyrði ég þær skrækar og glaðar á Spotlight og óskaði þeim góðrar skemmtunar áður en ég fór heim að sofa. Ég var mjög stolt af viljastyrk mínum en þar sem klukkan er að verða 2 núna og ég er ekki byrjuð að læra hefði ég víst alveg eins getað gefið honum frí og hrunið í það. Hrgmf