æææ hvað ég er þreytt í dag, gott að það er að koma helgi. Lenti á kjaftatörn seint í gærkvöldi við Pésa litla. Fyndið samtal, byrjaði þannig að ég tjáði skoðun mína á hans málum umbúðalaust og endaði þannig að hann tjáði skoðun sína á 'geðsjúklingunum sem mótmæla Kárahnjúkavirkjun' umbúðalaust. Þá fór ég að sofa :-) Uppgötvaði áðan að það er fínasta nuddtæki á sturtuhausnum okkar. Og áður en þið farið að flissa perralega tek ég það fram að ég notaði það á harðsperrurnar á milli herðablaðanna. Alveg ágætis nudd svo ég sé fram á að þrauka þar til nuddarinn minn kemur heim úr útlegðinni... Ég er eitthvað svo mikið að hlusta á Eminem þessa dagana því Eva er búin að vera að downloada lögin hans í hrönnum. Held samt að ég sé að breytast í kvenfyrirlítandi karlrembu hægt og sígandi. ...I do know one thing though, bitches they come they go... Þetta getur ekki verið hollt. Held ég verði að smella smá 'Ég á mig sjálf' á fóninn til að vega upp á móti þessum heilaþvotti. Frá og með núna og þar til á þriðjudaginn verður allt sem ég skrifa á þýsku. Consider yourself warned.
föstudagur, janúar 31, 2003
Previous Posts
- Það er ókunnug dama í gestabókinni minni, fallegt ...
- Þetta var nú langur dagur. Langur og strangur. Lan...
- MRL og bodypump í gær, brjáluð brennsla í morgun.....
- Rottweilerhundarnir fá stóran plús fyrir fyndni en...
- Samkvæmt Ólöfu er ég fáfróður auli. Ég er ekki sátt.
- Nú veit ég hvenær ég dey. Það mun gerast föstudagi...
- Ég ætlaði í brjálaða brennslu í morgun en þegar ve...
- Halló við erum ungt par á uppleið. Þegar við erum ...
- Bloggið mitt er að fá þvílíkar auglýsingar hjá hon...
- Aumingja ég í dag! Ég er með klikkaðar harðsperrur...

<< Home