Þetta var nú langur dagur. Langur og strangur. Langur og strangur og erfiður. En nú er hann búinn og það er gott. Litli skjólstæðingurinn minn var ekki mjög hamingjusamur í dag og þar af leiðandi ekki ég heldur. Við fórum í langan göngutúr sem gekk út á það að ég reyndi að fá hann inn úr kuldanum og hann ignoraði mig. Eins og venjulega :-) Fór í body combat eftir vinnu og svitnaði ærlega. Spurning hvort ég var að taka vel á því eða hvort það var af því að það voru þúsund gellur inní pínulitlum sal... Svo fór ég á snilldartónleika hjá 4Klassískum, þær eru ekkert smá flottar. Björk er náttúrulega flottust en kannski er það bara af því að hún er kennarinn minn. Nú var ég að kaupa My Fair Lady nótnabók á netinu, ýkt spennandi og svo er það mitt heittelskaða ból í smá stund áður en föstudagurinn rennur upp. Vonandi dreymir mig Heiðmerkurferð.
fimmtudagur, janúar 30, 2003
Previous Posts
- MRL og bodypump í gær, brjáluð brennsla í morgun.....
- Rottweilerhundarnir fá stóran plús fyrir fyndni en...
- Samkvæmt Ólöfu er ég fáfróður auli. Ég er ekki sátt.
- Nú veit ég hvenær ég dey. Það mun gerast föstudagi...
- Ég ætlaði í brjálaða brennslu í morgun en þegar ve...
- Halló við erum ungt par á uppleið. Þegar við erum ...
- Bloggið mitt er að fá þvílíkar auglýsingar hjá hon...
- Aumingja ég í dag! Ég er með klikkaðar harðsperrur...
- Smá áminning ef þið voruð búin að gleyma hvernig é...
- Úúúúú þetta var rosalegur dagur, ég heyrði alltaf ...

<< Home