þriðjudagur, september 30, 2008

Confused I am...

Ég heyrði stúlku segja í strætó áðan: "Það var sagt mér að Háskólinn í Reykjavík væri betri svo ég fór þangað" og það ruglaði mig mjög í ríminu. Innihald fullyrðingarinnar gefur til kynna að stúlkan sé komin yfir táningsár, en málfarið segir mér að hún sé cirka 4 ára!! Hjælp!

Góðkunningi þessa bloggs kom inn á lögmannsstofuna í gær og ritarinn hér um bil andaðist úr innbyrgðum hlátri. Óhætt er að segja að þeirra síðustu fundir hafi verið skrautlegir... Ritarinn vonaði að kunninginn myndi ekki eftir sér, en slapp að sjálfsögðu ekki svo vel! Kunninginn ekki bara mundi eftir henni, heldur sendi henni ímeil skömmu síðar sama dag til að dásama fegurð hennar og útgeislun, hárgreiðslu og bros, allt saman í von um endurfundi. Sannlega efni í sögu til næsta bæjar, ef ekki til barnabarnanna... Verst að prinsessan veit aðeins of mikið um prinsinn til að falla fyrir tilburðunum ;o)

Helginni var eytt í sveitinni, nánar tiltekið í Skagafirði. Þar fórum við í Laufskálarétt, á ýmis tryllitæki og á ofur-sveitaball. Hér má sjá vel valdar myndir:


Hér erum við systur á miklu tryllitæki, mig langar að segja sexhjól...Mamma, hvað segir þú?? Ekkert smá gaman að þeysa um kornakurinn á þessu, mér skilst að hlátrasköll hafi heyrst yfir fjörðinn, en ég sel það ekki dýrar en ég keypti það.



Hér erum við komin á ballið (nenni ekki að setja inn myndir af réttunum, það voru hestar og lopapeysur og bjórar og fólk og söngur og vaxkápur og skálmar og hattar og pelar -þið þekkið þetta) og þetta er augnablikið þegar Björgvin Halldórsson sjálfur steig á svið. Eins og sjá má var ánægjan nær yfirþyrmandi og hún minnkaði ekkert þegar hann tók Gullvagninn.



Dagný var aðalskvísan á ballinu (að okkur Evu fráskildum auðvitað) og eignaðist nýja vini hægri vinstri. Einn af nýju bestu vinum okkar Evu er þó þarna á ferð, hann Jakob lífvörður með meiru.



Þarna er ég með honum Jóa litla frænda sem ég passaði hérna í den. Hann réðst að mér fyrr um kvöldið og henti mér í faðm einhvers vinar síns og svo dönsuðu þeir gróflega sitt hvoru megin við mig. Mér skilst að dans þessi kallist að "jacka" og að njótandi þessara forréttinda á undan mér hafi verið sjálf Helga Möller! Aldeilis ekki leiðum að líkjast.

Já gott fólk, eins og þið lesið er ekki setið auðum höndum hér í Hlíð og ævintýrin enn gerast. Ó já.

mánudagur, september 22, 2008

Hey! Varst þú að segja að ég væri feit? (1)

Spurði ég blásaklausan samstarfsmann í stiganum á KB um helgina. Búin að tala um söng yfir hvítvíni, búin að mæta í -og flýja úr- unglingapartýi dauðans í orðsins fyllstu, búin að dansa eins og tryllingur við 90's tónlist og búin að labba ALEIN upp 1/3 af Laugarveginum í rigningu. Er eitthvað skrýtið að ég hafi lent mouth first í röngum misskilningi?

Samstarfsmaðurinn mótmælti auðvitað þessum rógi og eftir nokkrar rökræður var ég farin að sjá ljósið við enda ganganna, hann hafði líklegast ekki sagt að ég væri feit. Svo við Eva litla skemmtum okkur bara vel við að finna mögulegar mis-heyringar:
Sagðirðu að hún væri heit? (2)
Langar þig með henni á deit? (3)
Ertu að fara upp í sveit? (4)
Hefurðu smakkað geit? (5)


(Hvaða kostur þykir þér líklegastur af ofangreindum valkostum 1-5? Svör óskast í kommentakerfið)

*Þar sem hluti starfs míns felst nú í að lesa ýmis lögfræðimál skal skýrt og skorinort tekið skriflega fram að blessaður samstarfsmaðurinn sagði ekkert af ofangreindum hlutum, hann var sannlega ranglega ásakaður af stúlku sem lítur út eins og ég.*

Kvöldið var skemmtilegt, því verður seint neitað og allt endaði þetta vel að lokum. Ég var reyndar allt of fín fyrir fjárans bjórbaðið KB og skórnirnir mínir verða líklega aldrei samir. En 90's bálið hefur verið kveikt rækilega og næst á dagskrá er Haddaway á Nasa 3.okt! What is love, baby don't hurt me....

Ef þú manst textann kemurðu með, þannig eru reglurnar! ;o)

sunnudagur, september 14, 2008

Svarthvíta hetjan mín...

Hvað sem segja má um Rottuborg og íbúa hennar, skítastuðulinn, brúnkukremið, slagsmálin og fleira, mega karlkyns íbúarnir eiga eitt. Þeir eru, upp til hópa, herramenn. Stundum, þegar þeir eru aðeins of fullir, aðeins of margir eða búnir að búa aðeins of lengi undir berum himni, var ég ekki alltaf til í að taka þeim með þökkum, en stundum var ansi gott að geta á þá treyst. Þeir hlaupa til að opna hurðir, hleypa manni framfyrir í röðinni þegar maður er bara með 2 hluti að kaupa, gefa manni sætið sitt í lestinni og svo mætti stuttlega telja. En hér á Íslandi er þetta bara ekki til! Kannski er ég of ung og ófríð til að sjá þetta, það getur vel verið að það sé svaka service fyrir gamlar konur og megabeib, en það fer allhressilega framhjá mér!
Ég fann mjög gróflega fyrir þessu núna um helgina. Eftir ofur tilfæringar gærdagsins (allt komið í hillur og skúffur btw vúhú!!) þurfti ég að drösla gömlu skrifborði frá Evu út í bíl. Það var grenjandi rigning og borðplöturnar voru þungar, meira að segja fyrir massa eins og mig ;o) Ég kom þeim nú öllum út að bíl og þá hófst mikið pússluspil því þær pössuðu sko eiginlega ekki inn í bílinn. Rigningin gerði þær ekki léttari og heldur sleipari svo þetta var heljarinnar stúss og maus. Ég efast ekki um að þetta var hið spaugilegasta ásýndar, kona að missa plötur á tærnar á sér, kona með aðeins of litla rýmisgreind að troða risaplötu inn í lítinn bíl, kona að skalla dyrakarm bílsins, kona að blóta og hlæja á víxl... en samt þótti mér helvíti hart þegar tveir menn keyrðu framhjá og stoppuðu til þess eins að skrúfa niður rúðuna og segja: Það væri örugglega auðveldara að vera með hanska við þetta vænan! Já, ætli það ekki, sagði ég, þetta væri líka auðveldara ef ég væri ekki ein! Þeir tóku nú samt ekki þessu líka pena hinti, heldur ypptu öxlum og óku hlæjandi á brott.
Síðari hluti sögunnar gerðist svo í dag þegar koma þurfti plötunum í endurvinnslu. Til allrar hamingju var ekki rigning, en bakið var skakkt eftir hamfarir gærdagsins og langan vinnudag svo plöturnar voru síst léttari en deginum áður. Ég lagði bílnum á bandvitlausum stað en gat ekki bakkað til baka svo ég varð að drösla farminum fótgangandi að réttum gámi. Og það var sem við manninn mælt, í stæðið beint fyrir framan gáminn komu feðgar á bíl og hjálpuðust að við að bera út lampa, kolla og fleira smálegt. Horfðu svo á mig, veikburða kvensniftina, drösla plötum fleiri metra, stöðvandi í öðru hverju spori. Buðu þeir fram aðstoð sína? Ó nei!
Ætli karlmenn í dag séu svona vel uppaldir af sterkum konum við að kynin séu jafnsterk? Eða eru þeir hræddir um að ef þeir bjóði fram aðstoð verði þeir lamdir af reiðum femínistum? Ég vitna í nýlegan pistil og minni á að ég er sannlega hlynnt jafnrétti kynjanna, en ef það er algjörlega á kostnað herramennskunar verð ég víst að hugsa málið upp á nýtt.

laugardagur, september 13, 2008

Það fer ekkert á milli mála að það er komið haust. Rigning, rauð laufblöð og allir snúast um eigins rass að reyna að átta sig á nýjum dagskrám og landslagi næstu mánaða. Ég er nú aldeilis ekki nein undantekning þar frá, enda er ég að byrja í glænýrri dagskrá. Nýja vinnan byrjar bara ágætlega, samstarfsfólkið ágætt og vinnan verður meira krefjandi eftir því sem líður á skilst mér. Enda eins gott, annars mun ég andast úr leiðindum! Dagskráin lítur núna svona út: Strætó kl.6.45, ræktin, vinna 9-16, heim að borða og rífa mig úr fínu fötunum, fara í söngskólann að æfa mig og svo heim að lúlla. Eins gott að eiga ekki kærasta, það væri ekki nema hann væri strætóbílstjóri að ég hefði tíma fyrir hann...
Strætóferðirnar eru annars enn áhugaverðar, sérstaklega blóðkámið sem er búið að vera aftast vinstra megin í vagninum síðan í síðustu viku, mjög skemmtilegt. Íslendingar eru í miklum minnihluta í fyrsta vagni dagsins og Pólverjarnir horfa furðu lostnir á stúlkuna í hvitum íþróttasokkum ofaní háhæluðu skónum.
Ég tek vakt í Strýtuseli á morgun, svona til að minna mig á ræturnar, og eina frídegi vikunnar eyði ég nú í að taka upp úr Rottuborgarkössum og raða í hillur og skúffur. Þó fyrr hefði aldeilis fyrr verið krakkar mínir, en ég er ekkert að nenna því frekar þó að það hafi beðið lengi. Skrýtið. Treysti á löng slúðursímtöl og risapokann úr Nammilandi til að halda stuði í stússinu :o)

fimmtudagur, september 04, 2008

Að þekkja eigin veikleika

Nú er vetrarvertíð hafin með tilheyrandi strætóferðum. Hingað til hef ég aðallega notað í strætó í vettvangsferðir með vinnunni, svo þetta verður áhugaverð félagsleg tilraun og enn ein ástæða til að hlakka til fyrsta vetrarins á Íslandi síðan frostaveturinn 2004. Þær 4 strætóferðir sem ég hef farið í vikunni hafa tildæmis vakið mig til umhugsunar um veikleika og styrkleika fólks. Best að byrja á því að taka skýrt og skorinort fram fyrir þá sem þekkja mig ekki neitt að ég er mjög hlynnt jöfnum tækifærum allra. Fatlaðir eiga að fá að vinna, kynvillingar að fá að eignast börn, feitir að fá að fljúga og svo framvegis. EN maður verður að vita hvar takmarkanir manns liggja. Ég hætti tildæmis snarlega við að sækja um starf sem innihélt vinnu með blóð og bein og líkamsparta, því ég veit að ég ætti erfitt með slíkt. En það eru ekki allir starfsmenn Strætó bs jafn meðvitaðir og ég! Slíkar staðhæfingar má ekki setja fram án staðgóðra sannana og hér koma tvær slíkar:

1. Í strætó er svæði án stóla, ætlað fyrir hjól, barnavagna og hjólastóla. Þetta hefur Strætó merkt með stórum góðum límmiða sem á stendur: Þetta svæði er ætlað fyrir notentur hjólastóla. Góð hugmynd að setja svona límmiða í alla strætisvagna. Ekki svo góð hugmynd að láta lesblinda starfsmanninn búa þá til.

2. Ég spurði vagnstjórann hvort ég gæti keypt hjá honum miðaspjald (11 miðar fyrir 2500kr -mikilvæg staðreynd). Hann náði í veski og skoðaði, sagðist svo því miður ekki geta selt mér slíkt spjald þar sem hann ætti bara hálf spjöld og setti veskið aftur á sinn stað. Ég hikaði í smá stund og spurði svo feimnislega hvort það væri nokkuð möguleiki á að setja hálf spjöld saman, þannig að samtals yrðu 11 miðar?? Hann var til í að skoða það, tók veskið aftur upp og taldi miðana. Nei, það er ekki hægt sagði hann svo, því hann átti bara 10 miða. Það er nú bara fullkomið! hrópaði ég og rétti fram 2500 krónur. Ha? sagði þessi góði maður, nei ég get bara selt heil spjöld. Ég ákvað að líta framhjá því að bílstjórinn var með nokkur hálf spjöld í veskinu, svo þessi staðhæfing var greinilega ekki alveg sönn, heldur dró fram leynivopnið góða: Öskjuhlíðarskólaröddina!! Með henni útskýrði ég fyrir bílstjóranum að ef hann gæfi mér heilt spjald -11 miða- og ég borgaði svo fyrir farið -1 miða- stæði ég uppi með 10 miða. Þar af leiðandi væri fullkomið að hann gæfi mér nú 10 miða fyrir 2500 krónur. Þegar þarna var komið sögu horfði bílstjórinn örvæntingarfullum augum á mig og veginn framundan til skiptis, svo ég greip bara af honum miðana, setti pening í hönd hans og hljóp aftur í strætóinn áður þetta endaði með tárum (nú, eða handtöku!!). Þessi ágæti maður ók vagninum af mikilli snilld, en ætti kannski að keyra frekar vörubíl eða annað faratæki þar sem tölur/peningar koma lítið við sögu.

Annars er skemmst frá því að segja að tónleikarnir gengu allir ljómandi vel, ég náði að hitta flest af því fólki sem ég hef saknað í sumar og ég náði aldeilis að dressa mig (og aðra) upp! Næst á dagskrá er að læra að segja NEI.