fimmtudagur, október 31, 2002

Hola! Ég er komin á fætur aftur :-) Ég fékk nefnilega eitt af mínum stórkostlegu mígreniköstum í gær, það var vægast sagt ekki gaman. Svo er ég svo vitlaus, þegar ég byrjaði að fá hausverk hugsaði ég: Best að fara í smá göngutúr, ferska loftið reddar mér örugglega. Það virkaði ekki svo ég ákvað að leggja mig í smá stund. Þegar ég vaknaði gat ég varla hugsað fyrir hausverk dauðans og tók þá loksins lyfin mín. Þannig er nefnilega að þegar ég tek lyfin verð ég svo rugluð að ég verð að sofna sem fyrst og ég var að reyna að sleppa við það. Ekki mjög snjallt. En í dag líður mér mun betur, bara smá rest af verk eftir, ekkert til að kvarta yfir (amk ekki opinberlega). Mig langar hins vegar að kvarta yfir einu öðru: Í byrjun september fór ég til sérfræðings af því að mér var búið að vera óglatt samfleytt í 3 mánuði. Hún skoðaði mig í bak og fyrir og gaf mér svo nýja pillutegund sem átti að bjarga öllum mínum málum. Fyrir það borgaði ég 5500 kr en það var allt í lagi því þetta átti nú allt að vera komið í lag. En nú hefur komið í ljós að hún gaf mér handónýta pillu og mér líður verr ef eitthvað er og hef fullt af nýjum skemmtilegum aukaverkunum að kljást við. Ég hringdi til hennar og ætlaði bara að biðja hana að gefa mér nýjan lyfseðil, en nei! Hún er ekki með símatíma svo ég þarf að koma aftur til hennar... Og borga fyrir það!!! Eins og það sé mér að kenna að hún gaf mér vitlaust lyf? Þetta finnst mér ýkt lélegt og þar sem ég er ekki beint með þúsundkalla í veskinu sem bíða eftir að vera notaðir verð ég að þrauka þar til í janúar. Ömurlegt kerfi.
Gott að ég er að fara í söng, það gefur alltaf mikla útrás að teygja raddböndin til hins ýtrasta og maður gleymir öllu leiðinlegu á meðan því öll orkan fer í að einbeita sér að því að láta hávaðann hljóma manneskjulega ;-)

þriðjudagur, október 29, 2002

Ó já, ég var beðin um að taka það fram að í báðum heimsóknum mínum um helgina var mér boðið eitthvað annað og meira en vatn! Ég biðst afsökunar, þetta átti ekki að koma illa út... en samt gaman að það er eitthver sem les bullið mitt ;-)
Blogg dagsins er tileinkað Ólöfu Birnu Margrétardóttur, þar sem hún fær hrós dagsins og skömm dagsins. Byrjum á hrósinu. Hún kenndi mér að gera svona (ef þú smellir á 'svona' gerist svolítið flott). Þetta hefur mig lengi langað að læra, takk Ólöf! Ef þið smelltuð á svona og kíktuð smá vitið þið líka af hverju hún fær skömm dagsins. Hún setti terrible mynd af mér á bloggið sitt, þar sem ég sit upp á borði að leika ref. En hún gleymir einmitt að taka fram að ég var að leika ref og að það var gert í ákveðnum tilgangi!!! Skammastu þín Ólöf! Og nú halda vinir hennar örugglega að ég eigi við undarlegan andlitsvöðvaherpingssjúkdóm að stríða... :-)

mánudagur, október 28, 2002

PS. Fyrir áhugamenn um mannlegt atferli má benda á að umræddar síður á textavarpinu eru númer 671 og 2 :-)
Eftir mikla chill-helgi er ekki svo mikil chill-vika að hefjast. Það er gott, maður hefur ekki gott af of mikilli afslöppun... Fór í strákaheimsóknir um helgina, bæði föstudagskvöld og laugardagskvöld og verð að fá smá mótefni við öllum karl-hormónunum með því að heimsækja Ólöfu í kvöld. Ég er ýkt góð í svona heimsóknum, kem aldrei með neitt, fæ bara vatn að drekka og allir sáttir! Fór til Björns í heimsókn seint á föstudagskvöldið og horfði á Nýtt Líf og svo til Sigga á laugardagskvöldið og horfði á U2 in action (ég HATA stelpuna sem Bono skellir upp á svið). Í gærkvöldi leiddist mér þvílíkt og vissi ekkert hvað ég átti af mér að gera svo ég fór bara í Sporthúsið, sem var eiginlega alveg tómt. Greinilega ekki vinsælt að æfa á sunnudagskvöldum. Það er svona að vera blankari en allt sem blankt er, þá fer maður að gera skrýtna hluti til að skemmta sér. Annars var bara lært um helgina. Og fylgst með heitu spjalli á textavarpinu! Það er algjör snilld! Fólk borgar einhverjar 14 kr fyrir hvert sms sem það sendir inn á textavarpið, velur sér undarleg nick og chattar svo bara tímunum saman. Umræðuefnið er allt frá því að rífast um fótboltalið, metast um hver sé með mestu hommafóbíuna, ræða fantasíur og skiptast á símanúmerum með dónó í huga. Ég er alveg aðdáandi þessara síðna, mér finnst þetta stórmerkilegt! Það sem fólk segir opinberlega og lætur hafa sig út í er með ólíkindum. Og mig langar líka til að vita hvaða fólk sendir sms í svona síðu, hvernig týpur eru þetta? Kannski ég geri BA ritgerð um þetta... En fyrst þarf ég að lesa 30 bls um gregorskan og ambrósískan munkasöng Jei!!!!

laugardagur, október 26, 2002

Þetta er algjör leti-laugardagur! Ég sem þarf þvílíkt að læra um helgina... en ég er ekki alveg að koma mér í rétta gírinn. Þessi netheimsókn er einmitt gerð til að reyna að sparka mér í gang því ég er að prenta út glósur. Ég er alveg búin að gleyma mér við píanóið í dag því ég er að æfa svo ótrúlega fallegt ljóð og mig langar svo að syngja það eins vel og það á skilið svo ég æfi og æfi og æfi. Ýkt óheppnir nágrannarnir mínir :-)
Ég er í hálfgerðu sjokki í dag, ég fékk nefnilega Euro-reikning í gær þar sem meðal annars var að finna útgjöld mín í Skotlandi (það er óhætt að segja að ég hafi verið eitthvað mis í gengisútreikningunum) og upphæðin er hærri en upphæðin inn á bankareikningnum mínum. Eiginlega mikið hærri. Eiginlega svo mikið hærri að ég er að hugsa um að taka ekki þátt í jólunum þetta árið. Vá, þetta hefur aldrei komið fyrir mig áður og mér finnst þetta ekki gaman!
Jæja, það að byrja aftur að hugsa um í hversu miklu rugli ég er hefur gert mig hálf-depressíva og það er einmitt besta ástandið fyrir lestur ff svo það er eins gott að ég nýti tækifærið og skelli mér í bækurnar.
Ég er svona strumpur:

Find your inner Smurf!

Ég held að það sé nú bara mikið til í því, ég er mjög mjög sterk :-)

föstudagur, október 25, 2002

Góðan dag glaðan hag! Föstudagur enn á ný, undarlegt hvað það er stutt á milli helganna um þessar mundir... Vegna eymsla í rassi verður þetta blogg stutt og laggott, Survivor tíminn í gær fór ekki vel með setvöðvana og ekki urðu þeir kátari þegar ég tók smá rassaæfingsyrpu í morgun. Greyin eiga soldið erfitt með að vera lengi klesstir við stól með mig oná sér í dag. Er annars bara á leið í skólann, aðferðafræði frá 15-16.15 og svo hljómfræði 17-18.30. Æðislegar tímasetningar og frábærir tímar svona á föstudagseftirmiðdögum...
Svo eru bara rólegheit framundan í kvöld, ég er að fara í heimsókn til Sigurðar stórfrænda eða 'Siggiatírafárpunkturis' eins og ég kýs að kalla hann ;-) (Nú er mér örugglega ekki lengur boðið í heimsókn...) Svo verður eitthvað gert sér til dundurs annað kvöld, það er eins og ég finni á mér að eitthvað merkilegt muni gerast... hmmmm.... undarlegt.... Anyways, góða helgi kære venner *

fimmtudagur, október 24, 2002

Nú er bara aftur að koma helgi, en gaman. Held nú samt að ég gangi mjög mjög hægt um gleðinnar dyr þessa helgina, syndir þeirra síðustu eru enn að plaga mig... Fréttir dagsins eru að hin síðhærða ljóshærða Anna er horfin af sjónarsviðinu! Þetta er örugglega eitthvað sálfræðilegt, breytingar á einu sviði kalla á breytingar á öðru. Eða eins og Kaninn segir: Out with the old and in with the new :-) Ég er þvílíkt lukkuleg með þetta nýja look þó svo að það séu það ekki allir, sbr. einn gaur í söngskólanum sem sagði: Já en þú varst með svo fallegt hár! hmmmm...takk fyrir hrósið eða þannig... En hverjum er ekki sama, þetta er minn haus. Og hana nú!
Fór í þjóðlegan mat til Guðbjargar í gær, það var mjög indælt þó svo að slátrið hafi verið örlítið of mör-mikið fyrir minn smekk (maður er soddan borgarbarn í sér) ...grjónagrautur á nú samt alltaf greiða leið niður í maga. Nú er ég á leið í fyrsta söngtímann í 2 vikur, vonandi kann ég þetta ennþá. Er þvílíkt nojuð núna út af stelpu sem ég var að heyra um sem lærði enga/vitlausa tækni í söng og var látin standa á orgi í 3 ár. Nú er hún í talþjálfun og í þvílíkum raddbandameðferðum því hún er búin að skemma í sér röddina. Ég hef nú fullt traust á mínum kennurum en samt... makes you wonder...

þriðjudagur, október 22, 2002

Nú þarf ég að segja ykkur skemmtilegt. Ég fór í diction-tíma í söngskólanum áðan (diction: Framburður og hljóðritun) því það átti að vera ítalska, sem ég kann ekkert of vel. En það reyndist vera þýska í dag svo ég eyddi rúmum klukkutíma í að læra þýskan framburð mér til mikillar gleði! Pabbi verður svo stoltur af mér ;-) Reyndar kann ég ekki hljóðritun svo þetta var svolítið nýtt fyrir mér en samt.... ég hefði nú kannski ekki mætt ef´ég hefði vitað að þýska væri á matseðlinum, ljái mér hver sem vill!
Brjálað plan fyrir morgundaginn: Fara í Baðhúsið og taka vel á því, mæta í umræðutíma í forsendum félagsvísinda og reyna að segja eitthvað gáfulegt, fara til Guðrúnar og láta hana gera hausinn á mér manneskjulegan á ný, fara með dót til Dagnýjar, syngja ljóð í samsöng og redda mér fari upp í Árbæ í mat til Guðbjargar og fjölskyldu. Þar verður í boði grjónagrautur og kalt slátur, þjóðlegt og fínt, skolað niður með kóka kóla og bjór að hætti hússins ;-) Held ég fari bara að sofa fljótlega til að hafa orku í þessi hlaup um allan bæ... God nat
Mig langar til að setja eina reglu. Ég veit að henni verður ekki framfylgt en það væri nú samt indælt... Þegar vinkonur mínar eignast börn eiga þær að eignast sígrenjandi, frek, hávær og leiðinleg börn takk! Ég var sem sagt að koma frá Dagnýju og Ingibjörgu og o my god mig langar að eiga svona litla sæta dúllu!!! Hún er svo mikið yndi, hjalar bara og brosir út í eitt. Ég fékk alveg að knúsast með hana og gefa henni að borða og svo lúllaði hún í fanginu á mér og mig langar að eiga hana ! Hún er æðislegasta barn í heimi og hún verður sætari með hverjum deginum sem líður. Og fyrir manneskjur eins og mig er þetta illa, illa gert því mig langar ekkert í börn strax...Nema þegar ég er nálægt henni það er að segja (og öðrum fyrirmyndarbörnum). Þess vegna vil ég setja þessa reglu, til að vernda sjálfa mig fyrir bleikum blúndu-prinsessum sem gera skrýtna hluti við hormónana mína. Og mér finnst það bara ekki til of mikil ætlast!

mánudagur, október 21, 2002

Ég gleymdi alveg að segja frá því að þetta var líka, auk alls annars, celebrity-helgi... Í partýinu á laugardaginn var nefnilega Þórunn Clausen leikkona og í skírninni í gær var Íris, Hagkaupsmódel og fegurðardrottning með meiru. Haldiði að það sé.... :-)
Nú er ég að prenta út glósur í tugatali, þetta er ekkert smá pappírsflóð sem kemur út úr prentaranum mínum. Ég er örugglega búin að stúta litlum skógi síðan í september, grínlaust! En það er nú svo sem ekki mikið mál að prenta glósur, það er meira mál að lesa þær...hmmm
Ég fékk bréf frá royal Scottish áðan, þetta er ekkert smá ákaft lið! Nú fékk ég sem sagt sent bréf með nánari lýsingu á inntökuprófunum og 2 bæklinga um gistiaðstöðu í Glasgow. Ekkert smá dýrt að gista þar. Og af því að ég þarf að vera alveg 2 aukadaga til að geta flogið ódýrt fram og til baka er þetta orðið ansi dýrt ferðalag svona bara til að taka eitt próf. En þetta fylgir víst faginu, lífið mun að einhverju leyti ganga út á svona lítil og rándýr ferðalög ef ég legg þessa vitleysu fyrir mig :-) En í staðinn fæ ég vonandi að sjá einhverja staði sem ég færi annars aldrei til...
Nú held ég aftur út í kuldann, það er ekkert eðlilegt hvað það er orðið kalt núna. Ég er nefnilega að fara að syngja ástardúetta í söngskólanum...alveg stemmning fyrir ástarvæli þessa dagana eða hitt þó heldur!!! En í morgun sá ég mann labba úti í stuttbuxum og gallajakka! svo það er víst rétt sem einhver sagði einhvern tíma að kuldi er afstætt hugtak :-) Bæjó

sunnudagur, október 20, 2002

Vá þetta er búið að vera óeðlilega viðburðarík helgi, svei mér þá! Best að byrja á byrjuninni. Í síðasta salsatímanum á föstudaginn var ég beðin um að vera með í einhvers konar framhaldshóp sem æfir saman og dansar opinberlega... Það fannst mér hljóma spennandi svo ég sagði að sjálfsögðu Já takk! Líka fínt að geta lært meira án þess að borga fyrir hahaha :-) Svo fór ég nú bara heim í dekur, rauðvín í baði og lúxus...það var mjög ljúft. Svo var aríudeild á laugardaginn kl.12 (fáránlegur tími by the way) og það var mjög gaman, ég var reyndar ekki að syngja en maður lærir nú samt helling hjá honum Guðbirni snillingi bara af því að hlusta. Við sem vorum á leið í óperuna hittumst svo flest á Sólon og fengum okkur að borða fyrir sýningu, mæli ekki með matnum, oj! Það var mjög kósí en minnti mig samt á af hverju ekkert af þessu fólki er miklir vinir mínir, allt er best í hófi eins og maður segir. Rakarinn í Sevilla var frábærlega skemmtileg ópera, eðal-söngur og mikið grín og glens. Ég var sérstaklega hrifin af mezzó-stelpunni, ég væri sko alveg til í svona léttleika í röddinni og svona breitt raddsvið. Ég var nú reyndar ýkt léleg eftir sýninguna, stökk strax af stað því ég þurfti að kaupa bland og fara heim að skipta um föt fyrir partýið (og skella í mig eins og tveimur bjórum eða svo). Það var mikið fjör í partýinu þó svo að gestgjafinn minn hafi nú ekki beint verið að standa sig. Ég kom sem sagt þarna og þekkti eina manneskju sem var Grétar gestgjafi. Hann heilsaði mér með virktum, bauð mér inn og hvarf svo...mjög skemmtilegur. Þannig að ég sá þarna einhverja tvo gaura sitja soldið út úr og plantaði mér hjá þeim og píndi þá til að tala við mig. Það var nú bara fínt, indælispiltar og fínn félagsskapur á meðan ég gerði mitt besta til að hrynja í það. Við enduðum svo á kaupfélaginu, ég og einhverjir 4 strákar, það var ekkert leiðinlegt að dansa svona í karlahóp... Um fjögurleitið fékk svo nóg og fór beint heim að sofa ...hmmm... Við vorum svo heppin að vera ekki í beinu návígi við eldsvoðann ógurlega en urðum vör við reyk og slökkvibíla og einhverja pirrandi lögregluborða sem maður þurfti alltaf að vera að beygja sig undir :-) Nú var ég svo að koma úr skírninni hennar Ingibjargar Ylfu. Ég söng ekki, bæði vegna raddleysis míns og skipulagsleysis móðurinnar sem var ekki búin að tala við prestinn í gær svo það hefði ekki gengið hvort eð er. En ég fékk fullt af kökum og knús frá litlu prinsessunni sem átti hvert einasta hjarta í salnum, hún er ÆÐI. Og nú er bara málið að nýta sykursjokkið í eitthvað gagnlegt og fara að læra... right! En það er sem sagt planið fyrir kvöldið og á morgun hefst enn ein vikan, full af ævintýrum og spennandi uppákomum

föstudagur, október 18, 2002

Nú finnst mér ekkert gaman að skrifa á mitt blogg! Ólöf er komin með eitthvað súper dúper ofur fínt blogg og ég er svo mikill tölvu-ilbert að ég get ekki einu sinni gert tengil til að sýna þeim sem ekki vita hvar það er að finna hvernig það lítur út. En hún er allavega ýkt dugleg :-)
Við kláruðum loksins þáttagreiningarverkefnið í gær -jei! Enda ekki seinna vænna þar sem því á að skila í dag.... Var í Odda til að verða 9 og kíkti svo til Svövu með Domino's og kók. Ekki leiðinlegt. Svo er síðasti salsa-tíminn í kvöld, nú eigum við að vera búin að læra grunninn og þurfum því að borga aftur ef við viljum læra meira. Danskennsla er miskunnarlaus bransi, það er nokkuð ljóst. Og dansfélagi minn er að halda eitthvað streitustjórnunarnámskeið á Ísafirði svo ég neyðist til að dansa við einhvern ókunnugan, vonandi ekki einn af köllunum því þeir eru endalaust taktlausir! Held að það sé alveg málið að halda upp á útskriftina með því að skella sér á einhvern salsa-stað annað kvöld og viðra nýju fínu mjaðmahreyfingarnar. Verst að eini salsa-staðurinn í Reykjavík er fullur af rassaklípurum :-)
Góða helgi börnin mín

fimmtudagur, október 17, 2002

Nefmælt býð ég góðan dag.... Þetta er óþolandi ástand! Ætlaði þvílíkt í Baðhúsið í morgun en fattaði svo að ég get örugglega ekki labbað þangað án þess að kafna 7 sinnum á leiðinni svo ég held að það sé ekki góð hugmynd. Fékk nýja tegund af pasta hjá pabba í gær, ótrúlegt en satt. Bragðaðist bara vel, þó svo að það toppi náttúruega ekkert gamla góða TOROið :-) Fór svo til Sævars og horfði á What Women Want og lét dekra við mig, fékk fullt af súkkulaði og hálsbrjóstsykri, mjög læknandi! Svo var ég alveg klukkutíma á leiðinni heim því það komu alltaf ný og ný lög sem ég varð að syngja með og ég tímdi aldrei að hætta að hlusta svo ég keyrði bara um alla borg með útvarpið í botni...
Fékk ímeil frá royal Scottish í gær þar sem ég er beðin um að koma í inntökupróf 7.nóvember, skrifa ritgerð, upphitun, söngprufa og söngtími. Ég veit ekki alveg hvað málið er með þessa ritgerð, ég fæ einhvern klukkutíma til að skrifa hana og svo er ekkert sagt meir um það. Vonandi er það samt frekar 'Áhrif tónlistar á líf mitt' en 'Ævi og ástir Schuberts' ...ég er frekar manneskja í að bulla eitthvað almennt um mig en að skrifa einhverja voða söguritgerð. Held ég verði að spyrjast eitthvað aðeins fyrir um þetta og reyndar líka að leiðrétta þau aðeins því ég er skráð sem messó-sópran núna, veit ekki alveg hvaða kaos er í gangi þarna í Glasgow. það mætti halda að þetta væru einhverjir slúbbertar ;-)
Alveg að koma helgi... jei! Óperuferð og innflutningspartý á laugardag og skírn á sunnudag...þetta verður bara fínasta helgi held ég, það er að segja ef ég læri textann að Jesú bróðir besti og losna við kvefið svo ég verði mér ekki til skammar í kirkjunni þegar ég syng fyrir hana Ingibjörgu Ylfu :-)
Að lokum vil ég óska Ólöfu Birnu til hamingju með að eiga (að eigin sögn) besta kærasta í heimi !!!

miðvikudagur, október 16, 2002

Þetta er nú fáránlegt líf stundum!!! Ég er náði mér í yndislegt kvef þegar ég kom heim frá Skotlandi og er ný, ný-búin að losna við það og hvað gerist? Jú einmitt, ég fæ 5 sinnum verra kvef! Þegar ég fór að sofa í fyrradag var ég frísk eins og fífill en þegar ég vaknaði í gærmorgun var hausinn á mér að springa úr kvefi. Ömurlegt er ekki rétta orðið til að lýsa þessu. 'Otrúlegt en satt gat ég nú samt einhvernveginn sungið framhjá þessu í gær, það gæti ég hins vegar ekki í dag. Þannig að ég fór í söng og í skólann í gær en var komin undir sæng klukkan 4 og sofnaði upp úr átta...sweet...Kominn tími til að ég fengi almennilegan svefn. Dagurinn í gær var sem sagt frekar elliheimila-legur. En í fyrradag fór ég til Ólafar og horfði á Survivor og einhvern ógeðslegan krufningaþátt (sem var reyndar soldið spennandi). Svo ætlaði ég bara heim að lúlla mér en það breyttist heldur betur því við Grétar fórum í ísrúnt og eins og venjulega endaði það í fíflagangi og vitleysu svo ég kom heim þegar klukkan var að ganga 3. Ég er farin að hallast að því að kvefið mitt sé honum að kenna því hann lét mig sitja í marga klukkutíma í bíl og fara mjög seint að sofa. Grétar! Komdu hingað og lagaðu fyrir mig te!
Nú held ég í skólann með 7 tissjúpakka í töskunni og marga lítra af engifer-tei í maganum. Svo er það TORO í kvöld Jibbí !!!!!

mánudagur, október 14, 2002

Hæ hó! Upp er runnin mánudagur... ég hata mánudaga af því þeir eru dagarnir þar sem er mest að gera hjá mér. Ég er nú samt komin með ágætis lausn: Skrópa bara í tíma og nota daginn í eitthvað uppbyggilegt eins og ég er að gera núna hahaha.
Dagurinn í gær var aldeilis viðburðaríkur skal ég segja ykkur. Ég vaknaði snemma og skokkaði upp í Odda þar sem við Hafdís lögðumst yfir SPSS og þáttagreiningarverkefnið fræga. Það gekk lygilega vel, við ættum alveg að leggja þetta fyrir okkur. Svo hófst mikill leiðangur í leit að réttu sokkabuxunum fyrir kvöldið og það var nú bara ekki eins auðvelt og amatörar gætu haldið því leiðangurinn lá í öll apótekin sem opin voru kl.3 á sunnudegi þar til þær réttu fundust. Það var nú samt alveg þess virði því ég var algjört beib þegar ég var komin í átfittið ;-) Svo sótti Sævar mig og við fórum saman í sendiherrabústaðinn, eins gott því ég þekkti engan annan! Tónleikarnir voru Wonderful! Alveg ótrúlega flottir, hún túlkaði svo vel að ég fékk bæði gæsahúð og tár í augun... Svo var þarna einhver matur og slatti af rauðvíni, sem var mjög gott. Fullt af skemmtilegu og áhugaverðu fólki að tala við svo þetta var nú bara prýðisfín skemmtun og eftirminnileg upplifun að koma í þetta hús.
Svo kom ég heim, skipti um skó og skellti mér í húsvitjun til Guðbjargar og fjölskyldu í sparigalla dauðans og strigaskóm, very elegant. Það er alltaf jafn næs að heimsækja þau, Guðbjörg á nefnilega alltaf eitthvað nýbakað (án gríns) og þau passa vel upp á manni sé passlega hlýtt, maður sé hvorki svangur né þyrstur og að maður brosi nógu mikið. Og þau klikkuðu ekki í gær frekar en venjulega þessar elskur.
Svo voru það bara fyrirlestrar í morgun og á eftir fer ég í tónlistarsögu og fæ að vita hvað ég fékk í prófinu í síðustu viku. Vá hvað ég hlakka ekki mikið til! Og í kvöld ætla ég að heimsækja hana Ólöfu litlu sem er ekki lengur lasin og við eigum vonandi kósí stelpukvöld saman eins og okkur er einum lagið :-)

laugardagur, október 12, 2002

Aumingja maginn minn! Það er ekki gaman að vera hann í dag... Hann var sendur í rúmið fullur af ógeðslegum prómillum í nótt og svo er hlaðið í hann pringles og kók í dag. Ég gerði nefnilega þau mistök að láta ekki alveg renna af mér í gær áður en ég fór að sofa og mér hefnist fyrir það í dag. Það rættist sem sagt bara úr afmælisboðinu, það var mjög gaman og við stelpurnar í góðum gír (ég, Dóra og Svava). Svo fórum við á Players þar sem SSSól var að spila (vá hvað Helgi Björns er orðinn gamall!). Þar var fullt af skrýtnu og fullu fólki og smám saman þróust málin þannig að það voru 2 pör og ég á dansgólfinu. Sem var ekki mjög gaman þegar rólegu lögin komu (og þau voru ansi mörg) því þá voru þau náttúrulega að vanga og knúsast eitthvað og ég stóð ein í miðjunni... lalala... Ég hefði nú einhverntíma í gamla daga bara rölt á barinn og fundið mér einhvern að spjalla við en burtséð frá því að það voru kannski 3 gaurar þarna undir þrítugu sem voru ekki ofurölvi eða ógeðslegir er það ekki valmöguleiki í dag. Svo ég stóð bara áfram á dansgólfinu... lalala... Svo ég ákvað að koma mér bara heim á meðan það var ennþá svolítið gaman og gerði það. Fyrir utan Players hitti ég Þórð sem vann með mér á Kleppi en er núna dyggur þjónn lögreglunnar í Kópavogi. Það var gaman að spjalla við hann og hann var meira að segja svo sætur að bjóða mér far heim ('Við þurfum bara að bíða eftir að sjúkrabíllinn komi og sæki kellinguna sem er rotuð í aftursætinu hjá okkur og svo erum við lausir...') en þar sem mér fannst lögreglufylgd heim aðeins of mikið af því góða ákvað ég bara að borga 5 milljónir fyrir leigubílinn heim. Ein. Í kalt og tómt rúm. Vá, hvað átti bágt í þessar 5 sekúndur sem liðu þar til ég steinsofnaði ;-)
Í dag er það svo bara lærdómur út í eitt (það er bara smá pása núna) svo ég geti með góðri samvisku farið í dinnerinn annað kvöld. Það verður vonandi gaman og vonandi verður mallinn kominn í lag. Blogg dagsins var í boði Pringles og Coca Cola á Íslandi. Takk fyrir að lesa alla leið hingað

föstudagur, október 11, 2002

Í dag er alveg mont-dagur! Bandaríska sópransöngkonan sem ég var í tíma hjá um daginn hringdi nefnilega í mig í gær og bauð mér að koma í bandaríska sendiráðið á sunnudaginn. Þar heldur hún tónleika og svo er dinner og fínt á eftir. Hún sagðist hafa fengið 8 sæti svo það er nú bara ansi gott að vera boðið... og í þessum bransa þar sem allt byggist á samböndum er hún ekki slæm manneskja að þekkja, það er alveg á hreinu. Þannig að ég er bara ýkt ánægð með mig í dag :-) Ein vandamálið er: Í hverju á ég að vera ???!!!!!?? (ég er sko í alvöru að biðja um hugmyndir)
Djammið í kvöld er eitthvað að klikka vegna þess að Dagný má náttúrulega ekki drekka og Gunnhildur þarf að fara í vinnuna á morgun svo hún ætlar ekki heldur að drekka! Þá eru ég, Svava og Dóra eftir (plús eitthvað fólk sem ég ekki þekki) og það verður að segjast eins og er að þegar Dóra og Svava eru saman að tjútta þá er ekki pláss fyrir fleiri...því miður. Og þar sem ég er ekkert mjög æst í að vera eitthvert þriðja hjól þykir mér líklegt að ég fari bara snemma heim. Hrgfm. Kosturinn við það er hins vegar sá að þá verð ég fersk og fín á morgun þegar ég þarf að eyða deginum (laugardeginum) í þáttagreiningaverkefni sem er nákvæmlega jafn lítið skemmtilegt og það hljómar. Ó, það er svo gaman að vera í skóla...

fimmtudagur, október 10, 2002

Jæja, ég náði í einstaklinginn sem er svona ótæknivæddur og leysti það mál. Nú þarf ég bara að leysa peningamálin og þá er ég á grænni grein. Ég er nefnilega alveg að missa mig í frumkvöðlahlutverkinu...ég er sko fyrsti nemandinn sem vill fá lán hjá LÍN fyrir söngnámi í skólanum mínum. Það er greinilega meira en að segja það, ég þarf að koma með allskonar pappíra frá menntamálaráðuneytinu og eitthvað til að hægt sé að ATHUGA hvort ég geti fengið lán. Halló! Það er ekki eins og ég sé að biðja þau um að gefa mér peninga! Þannig að ég er vel peningalaus núna og ég get ekki einu sinni sagst vera 'fátækur listamaður' til að vera allavega soldið kúl....
Fór með Dagnýju áðan að kaupa gjöf handa Svövu því hún á afmæli á morgun. Hlakka ekkert smá til að detta í það til tilbreytingar, þetta klausturlíf gengur ekki lengur ;-) Stefnan er svo tekin á SSSól á Players, frumlegt og spennandi... Vildi að ég ætti afmæli og fengi fullt af gjöfum. En ég þarf víst að bíða ca.6 mánuði þar til það gerist. Jólin eru nefnilega ekki alveg eins því þá fá allir pakka og þetta er ekki manns eigin dagur skilurðu... Ekkert það að ég sé athyglissjúk eða neitt svoleiðis, mér finnst bara gaman að láta heiminn snúast í kringum mig eins og einn dag á ári eða svo :-)
Þvílíkt vesen! Ég á sko að heita formaður nemendafélgsins í söngskólanum mínum, ekkert nema gott um það að segja. Vandamálið er hins vegar að það er ekkert nemendafélag!!! Það hefur aldrei verið neitt slíkt til staðar í þessum skóla, við erum að tala um að það er ekki einu sinni til skrá með símanúmerum allra nemendanna. Þannig að nú er ég að reyna að segja fólki frá óperuferð í næstu viku (sem ég skipulagði augljóslega) og reyna að hafa samband við fólk til að segja þeim hvenær á að kaupa miða og svo videre en það er bara ekkert mjög auðvelt! Fyrst sendi ég ímeil á línuna en þá eru 2 sem hafa ekki ímeil... Ok, þá sendi ég sms á línuna en þá er samt 1 eftir sem á greinilega hvorki tölvu né gsm-síma. Hvað er málið með það??? Svo ég hringi og hringi heim til viðkomandi en hann er bara aldrei heima (og að sjálfsögðu er ekki símsvari heldur). Gleði gleði. Jæja, nú er ég búin að fá útrás og líður miklu miklu betur. Takk :-)

miðvikudagur, október 09, 2002

Ok nú þarf ég smá aðstoð frá þeim sem hafa meira vit á þessu blog-dótaríi en ég...
1) Hvernig laga ég klukkuna á þessu dóti?
2) Hvernig losna ég við [Anna Klara] fyrir ofan allt sem ég skrifa?
Svör óskast sem fyrst :-)
Hei! Ég er á lífi, ótrúlegt en satt!
Ég fór í heimsókn til Áslaugar, mömmu hans Jóa í gærkvöldi, það var mjög fyndið. Þarna sátum við saman, móðirin og kærastan og höfðum áhyggjur af sveininum unga í útlöndum... Right. Nei,nei það var mjög fínt en samt skrýtið að það sé enginn Jói þar.
Í dag er ótrúlega rólegur dagur, fór bara í Baðhúsið í morgun og svo fer ég í söng og svo í mat til pabba (sem verður vonandi rólegri stund en síðast...). Ég verð nú reyndar örugglega skömmuð í söng því ég er búin að vera ótrúlega löt að æfa mig upp á síðkastið, algjör tossi. Ég er eitthvað ótrúlega sein í gang þetta haustið, kannski ég þurfi að taka vítamín eða eitthvað til að hressa upp á heilastarfsemina.
Sá fullkominn rass í Baðhúsinu áðan, nú er ég alveg komin með markmið. Ég vil fá þennan rass!!! Kunni samt ekki við að spyrja hvað maður gerir til að öðlast þetta glæsilega form, ég verð bara að prófa mig áfram...kaupa Buns of Steel vídeó eða eitthvað. Eitt er víst: Maður fær ekki fallegan afturenda af því að hanga á netinu, svo ég læt þetta duga í bili.

þriðjudagur, október 08, 2002

Ef til er einhver góður dagur til að byrja svona blaður er það í dag. Ég fór í góðan söngtíma í morgun og svo var ég dregin í bíltúr af Sævari Samsöngvara. Hann vinnur við það að greina vandamál annarra og leysa þau og það gerði hann svo sannarlega við mín! Þúsund þakkir til hans fyrir að gera mig glaða á ný.Svo fór ég í tíma til bandarískrar óperusöngkonu sem hrósaði mér svo mikið að ég roðnaði niður í tær. En það var nú samt gaman :-) Nú er það saltfiskur áður en ég fer í survivor-tíma. Ef ég lifi það af skrifa ég aftur síðar en ef ekki er þetta dapurlegasta bloggsíða ever.