fimmtudagur, september 29, 2005

Rambadi loksins a nettengda tolvu her i skolanum. Thessi skoli er sko ekkert grin skal eg segja ykkur, ekkert nema langir throngir gangar sem allir eru eins. Buin ad labba nokkra hringi her undanfarna daga i leit ad leidinni ut ur volundarhusinu. En thad er fint ad hafa rambad a tolvu svo eg mun reyna ad merkja mer leidina hingad med braudmolum. Kynnti mer Alexandertaekni i morgun og er nuna a leid a crime-awareness fyrirlestur fra logreglunni i Glasgow. Einmitt thad sem eg tharf, ad verda adeins ooruggari ad ganga um gotur borgarinnar... A morgun hitti eg svo kennarann minn og eg hlakka mikid til. Hun virkar mjog indael thegar eg hitti hana i gaer en eg er spennt ad sja hvada aherslur hun hefur i songkennslunni. Svo er bara naestum komin helgi aftur! Og eftir helgina kemur Evan min i heimsokn! Mikid lidur timinn allt i einu hratt.
xxx

miðvikudagur, september 28, 2005

Ja, eg er komin aftur a netkaffihusid mitt og buin ad jafna mig eftir hrakningar gaerdagsins. Buin ad liggja a baen i alla nott svo peningarnir hljota ad skila ser. Stemmningin var ekkert spes thegar eg kom heim ur nemendaskraningunni en hun batnadi thegar eg for a post-grad hitting um kvoldid. Hitti fullt af skemmtilegu folki og drakk fullt af skemmtilegu raudvini svo thad baetti alveg fyrir vesenid. Nu er eg i eydu til kl.14 og planid er ad reyna ad fa mer skoskan bankareikning og taka leigupeninginn ut af honum. Eg er sko ekki ad fara ad borga f-ing KBbanka kronu i thjonustugjald thegar their tyna aleigunni minni einhversstadar i tolvunum sinum. Leigusalinn minn er hin indaelasta kona sem vill allt fyrir mig gera og hafdi miklar ahyggjur af mer i fyrradag thegar eg hafdi ekki skilad mer heim klukkan tiu um kvoldid. Hun varadi mig vid thvi ad labba ein heim a kvoldin thvi nokkrum husum fra mer var stelpu naudgad um daginn. Einmitt. En thad er gott ad vita ad einhver passar upp a mig/njosnar um mig ;o) Fyrir ofan mig byr kona milli thritugs og fertugs sem gengur mikid um golf a treklossunum sinum (kannski er hun hollensk!??) og fyrir nedan mig byr madur sem hefur sjonvarpid mjog hatt stillt og oskrar a hundinn sinn thegar hann geltir. Mjog kosy stemmning alltaf thegar heyrist Voff! Shut up stupid dog! med reglulegu millibili. Thad verdur frodlegt ad sja hvernig hundur og eigandi taka thvi thegar eg hef upp raust mina, kannski oskrar hann a mig ad halda kjafti lika... Lalalala! Shut up stupid lass!
xxx
Martrod skipulogdu konunnar. Raunveruleikathattur i 3 senum

Sena 1
Anna maetir i nemendaskraningu a thridjudegi klukkan 14:30 eins og henni var sagt ad gera i brefi sem hun fekk sent heim fyrir manudi sidan. Farid er yfir helstu atridi en svo segir konan: Thu att eftir ad borga skolagjoldin. Nei, segir Anna, eg borgadi thau 9.september og her er kittun fyrir thvi. Flott segir konan, en vid hofum ekki fengid thau. Thad tharf ad redda thessu hid fyrsta. Nidurstadan er su ad rumlega ein milljon (aleiga Onnu) er fljotandi einhversstadar i bankakerfinu en enginn veit hvar.

Sena 2
Anna spyr hvar hun geti fengid stundaskra. Thad er buid ad senda ther hana i tolvuposti. Nu, frabaert! segir Anna. Hvar fae eg imeiladressu? Hun er i postholfinu thinu. Og hvar er postholfid mitt? Thvi var uthlutad i gaer!!!??!? Nidurstadan er su ad Anna atti ad maeta degi fyrr en stod i brefinu.

Sena 3
Anna fer og faer postholf. I postholfinu er midi sem a stendur: Thu att ad maeta i tolvutima thirdjudaginn 27.sept kl.11:30 til ad fa imeiladressu. Thegar Anna les midann er klukkan 15:00 thridjudaginn 27.sept. Eftir ad hafa fengid nyjan tima i toluveri er nidurstadan su ad Anna fer heim i gettoid.

mánudagur, september 26, 2005

Hiya!
Buin ad finna mer thetta lika fina netkaffihus i rigningarblautum midbae. Eg bad gaurinn sem situr vid hlidina a mer um hjalp og hann vildi endilega bjoda mer uppa kaffi... islenski hreimurinn er greinilega heillandi ;o)
Eyddi helginni i ad koma mer fyrir og THRIFA, ibudin var oged! Lifrikid i eldhusskapunum var komid med eigid postnumer og vid skulum ekki byrja ad tala um badherbergid. Thad fyrsta sem eg tok uppur toskunni var tuska og eg byrjadi a tvi ad thurrka af adur en eg settist nidur. Thad segir allt sem segja tharf, enda hef eg ekki talist neitt serstaklega rykhraedd manneskja fram ad thessu. En nu er ordid ibudarhaeft i slotinu, m.a.s. kominn matur i isskapinn! Eg by eiginlega alveg i midbaenum og thad ma rekja slod bjorflasknanna fra bilastaedi sem eg tharf a ganga yfir ad husinu minu. Spennandi! Skolinn byrjar a morgun og eg hlakka mikid til ad hitta kennara og nemendur og ad tala vid folk (og segja kannski meira en cheers og sorry). Naesta mal a dagskra er svo ad kaupa mer tolvu... frekar fyrr en sidar! Thetta netkaffihusahozl er ekki alveg ad gera sig.
Meira sidar!
xxx

fimmtudagur, september 22, 2005

Þá styttist í brottför, meira að segja styttra en ein 24-sería í að ég stingi af. Ég er búin að næstum því öllu sem ég þarf að gera, m.a. að:
-knúsa næstum alla sem mig langar að knúsa bless (restin fær knús í dag)
-pakka bókum og fötum ofan í stóra kassa sem verða sendir á eftir mér út
-fá jafningjamat, með öðrum orðum að fá að vita hvað samstarfsfólki mínu finnst um mig í alvörunni. Kom skemmtilega á óvart, eða þannig.
-fá eins og eitt eða tvö nett kvíðaköst og jafna mig á þeim aftur
-segja þjóðinni hvað mér finnst um nýjar reglur Vinstrigrænna á síðum Fréttablaðsins... ekki spyrja!
-fara á Kalla og súkkulaðigerðina með Evu systur. Súkkulaði og Johnny Depp var, ótrúlegt en satt, ekki eins fullnægjandi og það hljómar.
Þá er bara eitt eftir:
Munið eftir annakge@gmail.com :o) Ég reyni svo að redda mér tölvu sem fyrst svo ég geti skrifað pólítíska pistla fyrir V-G.
xxx

mánudagur, september 19, 2005

Gott partý maður!
Já fínasta kveðjupartý þrátt fyrir arfaslaka mætingu. Það mætti ekki nema helmingur þeirra sem var boðið (og mjög margir létu mig ekki vita af fjarveru... dónar!) svo ég hefði getað sparað mér hellings innkaup og sleppt því að vara nágrannana við. En það voru góðir 20 gestir sem mættu svo ég var mjög sátt. Og bollan var ekkert smá góð! Reyndar var ekki nógu góð ástæða fyrir því... það var eiginlega ekkert áfengi í henni! hahaha ;o) Við vorum nokkur sem drösluðumst svo niður í bæ og var það venju fremur subbulegt. Ég veit ekki alveg hvaða gaurum ég var að lenda í en þetta var orðið frekar sorglegt í lokin. Ógeðiskallar. Ég rölti svo ein heim við dagrenningu og naut þess í botn því það má maður víst ekki gera í útlöndunum. Hugsaði margt og mikið á heimleiðinni, misgáfulegt reyndar, en aðallega var ég þakklát fyrir að eiga mína góðu vini. Kossar og knús til allra!

(Gæti verið einhver fyrirflutningavæmni í gangi? Hver segir að það þurfi óléttu til að verða ofurviðkvæmur?)

fimmtudagur, september 15, 2005

Það er sorglegt að pakka lífinu sínu ofan í kassa og setja kassana niður í geymslu. Hins vegar er spennandi að hefja líf á nýjum stað án þess að vera með einn einasta hlut að heiman. Fresh start með meiru. Skrýtið hvað þetta er gottvont allt saman. Sorglegt en spennandi, jájá. Mæta ekki allir á laugardaginn?? ;o)

þriðjudagur, september 13, 2005

Íbúðarmálin semsagt afgreidd og ég er ekkert lítið fegin. Ólöfin mín skellti sér bara til Glasgow og reddaði málunum, ekki að spyrja að því frekar en fyrri daginn! Íbúðin er stór og fín með grænt veggfóður og bleikan sófa, það er bara stemmning í því. Ég er sko alveg farin að hlakka til að kaupa uppþvottalög og þvottagrind híhíhí. Ekki það að mér leiðist neitt hér heima sko, það er nóg að gera. Ég hætti að vinna á föstudaginn og hef því núna nokkra daga til að pakka niður dótinu mínu og tæma herbergið. Það er sko ekkert grín skal ég segja ykkur því þrátt fyrir að hafa barist gegn því alla ævi virðist eitthvað af söfnunaráráttu móður minnar hafa borist til mín. En ég meina, kannski geta líffræðiglósurnar mínar frá því í Kvennó komið einhverjum að gagni einhvern tíma... eða kannski ekki. Reglan í tiltektinni er sú að ef ég nota það ekki núna mun ég ekki nota það eftir 4 ár, með smá undantekningum að sjálfsögðu. Svo þarf ég að hitta alla til að kveðja og knúsa og það tekur nú líka tíma. Hádegismatur hér, kaffihús þar... þetta týnist sko til en er auðvitað nauðsynlegt, skemmtilegt og í alla staði æðislegt að eiga svona marga vini. Svo þykist ég ætla að halda kveðjupartý næstu helgi en er hrædd um að það þurfi lítið kraftaverk til að það takist. Ég þarf þá allavega að fara að taka til hendinni fljótlega hmmm. Hlakka mikið til að tjútta með fólki úr ýmsum áttum og gera síðasta skandalinn í bili. Sé mig amk ekki í anda haugadrukkna á götum Glasgow fyrst um sinn, allavega ekki fyrr en ég rata almennilega heim ;o)

miðvikudagur, september 07, 2005

KOMIN MEÐ ÍBÚÐ!!! Húrra!