mánudagur, september 19, 2005

Gott partý maður!
Já fínasta kveðjupartý þrátt fyrir arfaslaka mætingu. Það mætti ekki nema helmingur þeirra sem var boðið (og mjög margir létu mig ekki vita af fjarveru... dónar!) svo ég hefði getað sparað mér hellings innkaup og sleppt því að vara nágrannana við. En það voru góðir 20 gestir sem mættu svo ég var mjög sátt. Og bollan var ekkert smá góð! Reyndar var ekki nógu góð ástæða fyrir því... það var eiginlega ekkert áfengi í henni! hahaha ;o) Við vorum nokkur sem drösluðumst svo niður í bæ og var það venju fremur subbulegt. Ég veit ekki alveg hvaða gaurum ég var að lenda í en þetta var orðið frekar sorglegt í lokin. Ógeðiskallar. Ég rölti svo ein heim við dagrenningu og naut þess í botn því það má maður víst ekki gera í útlöndunum. Hugsaði margt og mikið á heimleiðinni, misgáfulegt reyndar, en aðallega var ég þakklát fyrir að eiga mína góðu vini. Kossar og knús til allra!

(Gæti verið einhver fyrirflutningavæmni í gangi? Hver segir að það þurfi óléttu til að verða ofurviðkvæmur?)