þriðjudagur, september 13, 2005

Íbúðarmálin semsagt afgreidd og ég er ekkert lítið fegin. Ólöfin mín skellti sér bara til Glasgow og reddaði málunum, ekki að spyrja að því frekar en fyrri daginn! Íbúðin er stór og fín með grænt veggfóður og bleikan sófa, það er bara stemmning í því. Ég er sko alveg farin að hlakka til að kaupa uppþvottalög og þvottagrind híhíhí. Ekki það að mér leiðist neitt hér heima sko, það er nóg að gera. Ég hætti að vinna á föstudaginn og hef því núna nokkra daga til að pakka niður dótinu mínu og tæma herbergið. Það er sko ekkert grín skal ég segja ykkur því þrátt fyrir að hafa barist gegn því alla ævi virðist eitthvað af söfnunaráráttu móður minnar hafa borist til mín. En ég meina, kannski geta líffræðiglósurnar mínar frá því í Kvennó komið einhverjum að gagni einhvern tíma... eða kannski ekki. Reglan í tiltektinni er sú að ef ég nota það ekki núna mun ég ekki nota það eftir 4 ár, með smá undantekningum að sjálfsögðu. Svo þarf ég að hitta alla til að kveðja og knúsa og það tekur nú líka tíma. Hádegismatur hér, kaffihús þar... þetta týnist sko til en er auðvitað nauðsynlegt, skemmtilegt og í alla staði æðislegt að eiga svona marga vini. Svo þykist ég ætla að halda kveðjupartý næstu helgi en er hrædd um að það þurfi lítið kraftaverk til að það takist. Ég þarf þá allavega að fara að taka til hendinni fljótlega hmmm. Hlakka mikið til að tjútta með fólki úr ýmsum áttum og gera síðasta skandalinn í bili. Sé mig amk ekki í anda haugadrukkna á götum Glasgow fyrst um sinn, allavega ekki fyrr en ég rata almennilega heim ;o)