mánudagur, ágúst 15, 2005

Hvað má???

Góður vinur kom að máli við mig stuttu áður en ég fór út og spurði mig hvað mér fyndist um samskipti við fyrrverandi. Veit ekki hvað hann var að pæla að spyrja mig!!? Hann hefur greinilega aldrei kíkt á kommentin sem ég fæ á þessa síðu ;-) En ég, eins og sönnum ráðgjafa sæmir, hugsaði málið vel og vandlega og svara hér með:
Lesa blogg fyrrverandi?
Grátt svæði. Ef stutt er síðan sambandinu lauk er eðlilegt að þú viljir fylgjast með lífi hennar. Ef langur tími er liðinn getur það hins vegar verið merki um að þú viljir ekki sleppa takinu, sérstaklega ef þið eigið annars engin samskipti. (Nema auðvitað að hún sé svaðalegur góður penni, eins og ég hahaha).
Myndir af fyrrverandi
Ef myndir af henni eru í folder sem heitir Spánn 2003 er það að sjálfsögðu í lagi. Þið voruð hluti af lífi hvers annars og það er engin ástæða til að láta eins og sambandið hafi aldrei átt sér stað. hins vegar: Ef þú ert með spes folder með myndum af henni eingöngu ættu viðvörunarljósin að blikka. Og ef þú ert með sér folder með myndum af fleiri en einni fyrrverandi kærustu ertu einfaldlega sorglegur. Hundskastu af blogginu mínu og hættu að eyða tíma mínum!
Símanúmer
Ef þið eruð ekki í neinu sambandi til hvers ertu þá að geyma númerið hennar? Ætlarðu að hringja í hana eftir 2 ár og bjóða henni á deit? Eða ertu með númerið í símanum þínum svona ef þér skyldi ekki takast að hözla á tjúttinu? Ekki góð hugmynd væni. Ef þið eruð enn vinir gilda auðvitað allt aðrar reglur um símanúmer. Það má geyma símanúmer vina sinna í símanum ;-)
Vinir
Af hverju? er stóra spurningin í þessu samhengi. Af hverju í ósköpunum eruð þið vinir? Voruð þið vinir áður en þið urðuð par? Ok, ef sambandið var mislukkað er frábært ef vináttan getur haldist. Flest sambönd byrja þó sem deit-sambönd og vináttan þróast meðfram rómantíkinni. Þess vegna er óalgengt að fólk sé áfram raunverulegir vinir eftir sambandsslit. Fyrir vináttunni eru oft óskynsamlegar ástæður:
1. Vani. Þegar maður hefur farið í bíó með sömu manneskjunni í X tíma getur verið erfitt að breyta mynstrinu. Vendu þig af þessu! Það er hvort eð er bara asnalegt að sitja við hliðina á henni og vera meðvitaður um það að þið leiðist ekki og deilið ekki poppinu.
2. Fylla upp í tómarúm. Einmanaleiki og depurð fylgja oftast slitum og með því að vera áfram vinir er hægt að láta eins og ekkert hafi í skorist. Þetta frestar samt bara því óumflýjanlega. Face it-it's over.
3. Vonin um að neistinn kvikni aftur. Oftast annar aðilinn og endar undantekningalaust illa. Það er ömurlegt að hætta með kærustunni, af hverju viltu gera það tvisvar?
4. Gredda. Nei nei! Þetta er versta ástæða fyrir vináttu í heimi! Hvern ertu að blekkja?
Ef þú vilt endilega vera vinur hennar prófaðu eftirfarandi: Spurðu sjálfan þig hvernig þú tækir því að hún segði þér frá gaurnum sem hún er skotin í. Hvernig tæki hún því ef þú talaðir um aðrar stelpur? Vinir eiga að geta talað um allt og eiga ekki að þurfa að fela neinn part lífs síns fyrir hinum. Þið skuluð bara vera vinir ef það er eingöngu vináttunnar vegna. Hitt borgar sig ekki, believe you me!
Bólfélagar
Svo kynlífið var gott en restin ekki? Sjá lið 4 undir vinir en ef þú neitar að meðtaka það, vesgú: Ef þið treystið ykkur til að aðskilja kynlíf og tilfinningar og kynlífið er gott go for it! Munið bara að meta stöðuna af og til og vera viss um að þið séuð bæði sátt við eðli sambandsins. (Bólfélagar er nota bene ekki það sama og vinir).

Vonandi hjálpar þetta þér eitthvað minn kæri!
Knús,
The Lovenurse